Dregið var í hádeginu í 32 liða úrslitum Valitor bikarsins Grindavík var síðasta liðið sem drógst upp úr pottinum og mæta því KA fyrir norðan. Leikið verður annaðhvort 25. eða 26. maí. Liðin mættust einnig í fyrra þar sem KA sló út Grindavík eftir vítakeppni og eigum við því harma að hefna.
Eyjólfur sæmdur Silfurmerki ÍSÍ
Körfuknattleiksþingið fór fram á Sauðárkróki um helgina og var Eyjólfur Guðlaugsson sæmdur Silfurmerki ÍSÍ að því tilefni. Viðurkenningin er veitt fyrir störf í þágu körfuboltans í gegnum árin. Guðbjörg Norðfjörð var einnig sæmd Silfurmerkinu og er myndin hér að ofan af þeim ásamt Hafsteini Pálssyni, stjórnarmanni í ÍSÍ, sem veitti viðurkenninguna. Á körfuknattleiksþinginu var einnig kosið í stjórn KKÍ þar …
Samningur við Eimskip
Knattspyrnudeild Grindavíkur og Eimskip skrifuðu undir nýjan samstarfssamning í hálfleik á leik Grindavíkur og Vals í gærkvöldi. Eimskip er einn öflugasti samstarfsaðili fótboltans í Grindavík og lýsti Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar, yfir mikilli ánægju með samninginn. Eimskip er umfangsmikið í útflutningi fyrir sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík. Á myndinni eru Þorsteinn og Brynjar Viggósson frá Eimskip.
Uppskeruhátíð yngri flokka
Miðvikudaginn 11. maí nk verður haldin uppskeruhátíð yngri flokka (krakkar í 5. bekk og eldri) körfuknattleiksdeildar UMFG Hátiðin verður í sal grunnskólans og hefst kl. 17:00. Þar munu þjálfarar fara yfir árangur vetrarins og veita þeim verðlaun sem skarað hafa framúr. Veisla eins og venjulega á eftir! Unglingaráð fer þess á leit við foreldra, í fyrsta lagi, að mæta og í …
Grindavík 0 – Valur 2
Í kvöld áttust við í annari umferð Pepsi deild karla Grindavík og Valur sem lauk með 2-0 sigri gestanna. Valur komst strax yfir á 18. mínútu og var þar að verki Arnar Sveinn Geirsson eftir sendingu frá Christian R. Mouritsen. Guðjón Pétur Lýðsson skoraði annað mark Valsmanna á 29. mínútu. Hættulegustu færi Grindavíkur áttu Scott Ramsay og Bogi Rafn Einarsson. …
Nýr leikmaður:Robbie Winters
Gengið hefur verið frá samningum við Robbie Winters sem æft hefur með liðinu undanfarna daga. Robbie Winters er 36 ára skoti og þar með fjórði leikmaðurinn frá Skotlandi enda hafa leikmenn þaðan reynst okkur vel. Robbie spilaði með Ólafi Erni hjá Brann og þar áður með skosku liðunum Dundee United, Aberdeen og nú síðast með Livingston. Með Brann skoraði hann …
Forvarnarnefnd UMFG býður upp á fræðslu fyrir ungmenni
Í tilefni 75 ára afmælis UMFG í fyrra samþykkti stjórn UMFG að stofna forvarnarsjóð UMFG. Markmið sjóðsins er að styðja og styrkja forvarnarstarf deilda UMFG og að aðstoða við framkvæmd forvarnarstarfs. Forvarnarnefnd UMFG tók til starfa í október 2010 og fram undan eru ýmis verkefni. Fyrsta verkefni forvarnarnefndarinnar var að bjóða þjálfurum UMFG ásamt öðrum sem vinna með börnum í …
Vormót og páskamót JSÍ
Góður árangur á vormóti og páskamóti í júdó. Laugardaginn 16. apríl fór fram Vormót JSÍ og kepptu fimm drengir frá Grindavík: Marcin Ostrowski fékk gull í -50kg 13-14 ára. Sigurpáll Albertsson fékk gull í -90kg 15-19 ára. Sólon Rafnsson fékk gull í -60kg 15-16 ára. Reynir Berg Jónsson fékk silfur í -60kg 15-16 ára. Guðjón Sveinsson fékk silfur í -73kg 15-16 …
Helgi Jónas aðstoðar-landsliðsþjálfari
Helgi Jónas Guðfinnsson hefur verið valinn í þjálfarateymi landsliðs karla Landsliðið hefur verið endurvakið og mun taka þátt í Norðurlandamótinu í Sundsvall Svíþjóð í sumar og Evrópukeppninni þar sem undankeppnin byrjar á næsta ári. Helgi Jónas mun verða Peter Ögvist til aðstoðar en Peter er þjálfari Sundsvall og þar með talið Hlyn Bæringsson og Jakob Sigurðarson. Mynd visir.is
Sala árskorta hafin
Sala árskorta á heimaleiki Grindavíkur í Pepsideild karla er hafin af fullum krafti. Mun hagstæðara er að kaupa árskort en miða á einstaka leiki. Ársmiðar fyrir fullorðna kosta 12.000 kr. Ársmiði með súpu á Salthúsinu fyrir leiki kostar 16.000 kr. Ársmiði 11-16 ára kostar 4.000 kr. Hægt er að kaupa miðana í Gula húsinu eða af stjórnarmönnum knattspyrnudeildar og í …










