Uppskeruhátíð yngri flokka

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Miðvikudaginn 11. maí nk verður haldin uppskeruhátíð yngri flokka (krakkar í 5. bekk og eldri) körfuknattleiksdeildar UMFG

 

Hátiðin verður í sal grunnskólans og hefst kl. 17:00.

Þar munu þjálfarar fara yfir árangur vetrarins og veita þeim verðlaun sem skarað hafa framúr. Veisla eins og venjulega á eftir!

Unglingaráð fer þess á leit við foreldra, í fyrsta lagi, að mæta og í öðru lagi að hafa með sér köku eða eitthvað sambærilegt.

Senda börnin með það, ef þeir eiga ekki heimangengt.

Áfram Grindavík

Unglingaráð körfuknattleiksdeildarinnar