Það er toppleikur hjá 2.flokki karla í kvöld þegar strákarnir taka á móti HK/Ýmir í kvöld klukkan 19:00 Liðin eru að spila í C deildinni þar sem HK/Ýmir eru efstir með 27 stig. Haukar eru í öðru sæti með 26 stig en Grindavík í því þriðja með 22. Eins og sjá má á vef ksi.is þá er þetta fjölbreyttur hópur …
Sex stiga leikur í dag
Tvö neðstu liðin í Pepsideild karla, Grindavík og Selfoss, mætast á Grindavíkurvelli kl. 18:00 í dag. Athygli er vakin á leiktímanum. Þetta er einn af þessum svokölluðu sex stiga leikjum og klárlega mikilvægasti leikur sumarsins hjá strákunum okkar sem verða án þriggja lykilmanna í dag. Marko Valdimar Stefánsson og Pape Mamadou Faye taka út eins leiks bann vegna fjögurra gulra …
Nánast úrslitaleikur fyrir okkur
,,Stigin skipta gríðarlegu máli núna og leikurinn í kvöld er leikur sem við verðum að vinna. Þetta er nánast úrslitaleikur fyrir okkur,“ sagði Óskar Pétursson markvörður Grindvíkinga við Fótbolta.net í dag en liðið mætir Selfyssingum í Pepsi-deildinni í kvöld. Þessi lið eru í fallsæti í Pepsi-deildinni fyrir leikinn í kvöld en þau gerðu 3-3 jafntefli fyrr í sumar. ,,Í fyrri …
Grindavík – Selfoss í kvöld
Grindavík og Selfoss mætast í kvöld á Grindavíkurvelli í leik sem gæti skipt sköpum fyrir bæði lið. Leikurinn hefst klukkan 18:00 Oft er talað um 6 stiga leik og er þetta sannarlega einn slíkur. Haustmótið er nú hafið þar sem Grindavík, Selfoss og Fram berjast um sæti í efstu deild að ári. Fyrir leikinn er Grindavík í 12 sæti með …
Grindvískir stuðingsmenn í stuðningssveit íslenska landsliðsins!
www.karfan.is er með ansi skemmtilega áskorun á stuðningslið íslensku liðanna í körfunni og er m.a. minnst á okkar frábæru stuðningssveit sem ber nafnið Stinningskaldi. Allir Stinningskaldar eru væntanlega að fara mæta á leikinn á morgun í fótboltanum á móti Selfossi en svo hvet ég alla körfuboltaáhugamenn til að mæta á landsleikinn á móti Ísrael í Laugardalshöllinni á þriðjudagskvöldið. Loksins er …
Þórkatla í stuði
Grindavíkurstelpur lögðu Álftanes að velli í B-riðli 1. deildar kvenna í gærkvöldi 2-1. Þórkatla Sif Albertsdóttir fyrirliði var í miklu stuði og skoraði bæði mörk Grindavíkurliðsins en hún er markahæsti leikmaður liðsins í sumar með 6 mörk. Þetta var fjórði sigur Grindavíkur í síðustu fimm leikjum. Fyrra mark Þórkötlu kom á 39. mínútu úr vítaspyrnu en þá jafnaði Grindavík leikinn. …
Texaskvöld á Bryggjunni
Kántrýtríóið Texas mun leika kántrýtónlist á Bryggjunni þann 24. ágúst n.k. Tríóið er skipað þeim Agnari Má Magnússyni píanoleikara, Axel Ómarssyni söngvara og gítarleikara, og Ómari Axelssyni bassaleika. Agnar már Magnússon er er einn þekktasti píanóleikari landsins um þessar mundir og er aðallega þekktur fyrir djass, tónlistarstjórn stórtónleika og fyrir leikhús. Agnar var meðal annars útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2010 og …
Álftanes 1 – Grindavík 2
Grindavík er komið í 19 stig í 1.deild kvenna B riðli eftir 2-1 sigur á Álftanes í kvöld. Þórkatla Sif Albertsdóttir tók við markaskónum frá Margréti því Þórkatla skoraði bæði mörk Grindavíkur í kvöld og tryggði þannig okkar stúlkum sigurinn. Grindavík hefur því sigrað 4 af síðustu 5 leikjum og eru á hraðri uppleið. Staðan í deildinni er þannig að …
GG í 3. sæti 3. deildar
Sveit Golfklúbbs Grindavíkur varð í 3. sæti í 3. deild karla í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór um síðastliðna helgi í Öndverðarnesi. GG lagði sveit Golfklúbbs Norðfjarðar í leik um þriðja sætið og fékk því bronsið, annað árið í röð. GG var nálægt því að komast upp í aðra deild en tapaði fyrir heimamönnum í Golfklúbbi Öndverðarness í undanúrslitum. Tvær …
Þrír sterkir í leikbanni gegn Selfossi
Grindvíkingar verða án þeirra Alexanders Magnússonar, Markos Valdimars Stefánssonar og Pape Mamadou Faye í fallbaráttuslag gegn Selfyssingum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á mánudaginn á Grindavíkurvelli. Allir voru þeir úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær, Marko og Pape vegna fjögurra gulra spjalda en Alexander hefur nælt sér í sjö áminningar á þessu keppnistímabili. …










