Grindavík sækir Keflavík heim í Lengjubikar karla í köfubolta í kvöld kl. 19:15. Búast má við hörku leik eins og ávallt þegar þessi tvö nágrannalið eigast við. Grindavík hefur fullt hús eða 4 eftir tvær umferðir í riðlinum en Keflavík hefur 2 stig. Þegar liðin mættust í deildinni á dögunum fór Grindavík með öruggan sigur af hólmi.
Keflavík – Grindavík í Lengjubikarnum
Liðin í A-riðli Lengjubikarsins mætast í kvöld í tveimur leikjum. Grindavík sækir Keflavík heim en Skallagrímur mætir Haukum á Ásvöllum. Leikur Grindavíkur og Keflavík fer fram í Toyota höllinni klukkan 19:15 Grindavík er efst eftir tvo leiki þar sem þeir unnu bæði Skallagrím og Hauka nokkuð örugglega. Snæfell, Tindastóll og Þór Þorlákshöfn eru efst í hinum þrem riðlum Lengjubikarsins. Keflavík …
Strákarnir í stuði
Íslandsmeistarar Grindavíkur sýndu mátt sinn og megin með því að rassskella Njarðvíkinga í Röstinni í gærkvöldi með 107 stigum gegn 81 í úrvalsdeild karla í körfubolta. Grindvíkingar náðu strax yfirhöndinni og komust í 22-4 eftir fjögurra mínútna leik. Hinn bandaríski Samuel Zeglinski fór á kostum í upphafi leiks en þessi strákur hefur vakið athygli í upphafi móts. Eftir fyrsta leikhluta …
Marko Valdimar gerir nýjan samning
Marko Valdimar Stefánsson verður áfram leikmaður Grindavíkur en hann skrifaði undir samning við félagið til 2014. Marko er 22 ára og getur bæði leikið sem varnarmaður og varnarsinnaður miðjumaður. Hann lék 18 leiki í deildinni í sumar. Frá þessu er greint á fotbolti.net. Marko Valdimar var kjörinn leikmaður ársins í sumar en Grindavík féll sem kunnugt er úr úrvalsdeildinni. Mynd: Leikmenn …
Yngri flokkar að spila um helgina
Það verður nóg að gera hjá nokkrum af yngriflokkum körfuknattleiksdeildarinna um helgina þegar fyrsta umferð Íslandsmótsins fer fram. Hjá stúlkunum leikur 10. flokkur stúlkna í Grindavík og 7. flokkur stúlkna í Hafnarfirði, Hjá strákunum fer minnibolti drengja í Stykkishólm og þá spilar 9.flokkur í Borgarnesi. Hægt er að sjá hvenær leikirnir fara fram efst á heimsíðu körfuknattleiksdeildarinnar (www.umfg.is/karfa)
Stemmning á pöllunum eykur líkurnar á velgengni
Grindavík mætir nágrönnum sínum í Njarðvík í Röstinni kl. 19:15 í kvöld. Það tók Grindavík ekki nema nokkrar klukkustundir að ráða eftirmann Helga Jónasar Guðfinnssonar sem þjálfara Grindavíkurliðsins í vor eftir að hann tilkynnti að hann hætti á toppnum sem Íslandsmeistari. Efnilegasti þjálfari landsins, Sverrir Þór Sverrisson, sem gerði kvennalið Njarðvíkur að tvöföldum meisturum á síðustu leiktíð, var ráðinn til starfans. …
Grindavík – Njarðvík
Grindavík tekur á móti Njarðvík í kvöld klukkan 19:15 í fjórðu umferð Domins deild karla. Grindavík er fyrir leikinn með tvo sigra og eitt tap en Njarðvík einn sigur og tvö töp í fyrstu þremur leikjum Íslandsmótsins. Njarðvík hefur í sínum röðum tvo öflugua útlendinga Jeron Belin sem er með 28.7 stig að meðaltali og Marcus Van sem er hærri …
Grindavík 107 – Njarðvík 81
Grindavík er aftur komin á beinu brautina í Dominos deildinni eftir sigur á grönnum okkar úr Njarðvík í kvöld. Það þarf engan að undra þegar litið er á þjálfarann að varnarleikurinn er og verður öflugur í vetur. 6-0, 14-3 og 22-5 í byrjun leiks gaf tóninn og var sigurinn aldrei í hættu. Hættulegastur í liði gestanna var Marcus Van …
Grindavík burstaði Skallagrím
Grindavík pakkaði Skallagrími saman í Lengjubikar karla í körfubolta í gærkvöldi með 104 stigum gegn 79. Ekkert varð af því að Páll Axel Vilbergsson spilaði gegn sínum gömlu félögum í Grindavík því hann er meiddur og sat á bekknum. Skallagrímur hafði 8 stiga forskot í hálfleik. En Grindavík fékk augljóslega mikla yfirhalningu frá þjálfara sínum í hálfleiksræðunni því Íslandsameistararnir fóru …
Óskar verður áfram hjá Grindavík
Óskar Pétursson, markvörður Grindvíkinga, mun verða áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Þetta staðfestir hann í samtali við Víkurfréttir. Hann hafði verið orðaður við nokkur lið í Pepsi-deildinni en Grindavík féll sem kunnugt er úr Pepsi-deildinni í sumar. „Það er nánast frágengið að ég verði áfram í Grindavík. Ég tel þetta ekki rétta tímann til að stökkva frá borði,“ …










