4 liða úrslit

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík er komið í 4 liða úrslit eftir sigur á Skallagrím í gær. Var þetta annar leikur liðanna í 8 liða úrslitum og var sigurinn aldrei í hættu í gær.  Eftir jafnar þrjár mínútur tók Aaron Broussard af skarið og hitti vel úr sínum skotum.  Jafnt og þétt jókst munurinn á milli liðanna og endaði leikurinn  102-78. Aaron var með 23 …

Tekst Grindavík að tryggja sig inn í undanúrslitin?

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík getur tryggt sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta ef liðinu tekst að leggja Skallagrím að vell þegar liðin mætist í Borgarnesi í kvöld kl. 19:15. Grindavík vann fyrsta leik liðanna eftir nokkurt basl og því ljóst að um hörku leik verður að ræða í kvöld.

Annar leikurinn gegn Skallagrím

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík og Skallagrímur mætast í annað sinn í 8 liða úrslitum Dominsdeildarinnar í kvöld. Leikurinn fer fram í Borganesi og geta okkar menn tryggt sér sæti í 4 liða úrslitum með sigri í kvöld.  Ef það tekst ekki þá verður þriðji leikurinn spilaður í Grindavík á fimmtudaginn. Fyrsti leikurinn í einvígi þessara liða fór 103-86 en heimavöllur Skallagríms, Fjósið, hefur …

Vormót JSÍ

Ungmennafélag GrindavíkurJudó

Sigurpáll Albertsson vann til tveggja silfurverðlauna á vormóti JSÍ. Tveir fulltrúar frá Grindavík kepptu á vormóti JSÍ 2013, þeir Marcin Ostrowski og Sigurpáll Albertsson.   Marcin keppti í -66kg 15-16 ára. Hann vann fyrstu glímuna sína, en gat svo ekki haldið áfram keppni vegna meiðsla og komst því ekki á verðlaunapall. Sigurpáll keppti í tveimur aldursflokkum. Í 17-19 ára flokki …

Alvaran byrjar í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Íslands- og deildarmeistarar Grindavíkur hefja titilvörnina í kvöld þega Páll Axel vilbergsson og félagar í Skallagrími koma í heimsókn í fyrsta leik átta liða úrslitanna. Leikurinn hefst kl. 19:15. Búist má við hörku leik enda eru Skallagrímsmenn ólíkindatól og geta tekið upp á hverju sem er séu þeir í stuði.   Ómar Örn Sævarsson hefur verið fjarverandi í Grindavíkurliðinu upp …

Úrslitakeppnin byrjar í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Deildarmeistarar Grindavík byrja úrslitakeppnina í kvöld þegar þeir taka á móti Skallagrím klukkan 19:15 Skallagrímur varð í áttunda sæti í deildinni og fáum við því þá í fyrstu umferð.  Innan raða Skallagríms er sá leikmaður sem þekkir íþróttahús Grindavíkur hvað best, Páll Axel Vilbergsson, og gæti orðið hættulegur í kvöld. Hjá Grindavík eru tveir menn að berjast við meiðsli, Ómar …

Ingvi Þór í U15

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Þjálfarar U15 ára landsliðanna hafa valið endanlega 12 manna hópa sína sem taka þátt í Copenhangen Invitational í sumar, 13.-16. júní.  Ingvi Þór Guðmundsson er þeim hóp. Það ætti fáum að koma á óvart að Ingvi sé valinn enda mjög hæfileikaríkur. Enda á hann ekki langt að sækja þá hæfileika með Sirrý og Gumma Braga sem foreldra og Jón Axel …

Grindavík burstaði Fjölni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur áttu ekki í vandræðum með botnlið Fjölnis í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Grindavík vann með 19 stiga mun, 91-72. Staðan í hálfleik var 43-38. Með sigrinum komst Grindavík upp að hlið Njarðvík í 6. til 7. sæti deildarinnar. Ein umferð er eftir og ljóst að Grindavík siglir lygnan sjó í deildinni og kemst hvorki í úrslitakeppnina né …

Grindavík og Skallagrímur hefja leik á föstudag

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Úrslitakeppnin í körfubolta karla hefst í kvöld en Grindavík mætir Skallagrími annað kvöld (föstudag) í Röstinni kl. 19:15. Þá mætir Páll Axel Vilbergsson fyrrum fyrirliði Grindavíkur með Borgnesinga til Grindavík verða eflaust fagnaðarfundir. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer í undanúrslit. Leikjaprógrammið lítur þannig út: Leikur 1: Grindavík-Skallagrímur föstud. 22. mars kl. 19:15Leikur 2: Skallagrímur-Grindavík mánud. 25. mars …

Grindavík að komast í gang

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík átti ekki í neinum vandræðum með Tindastól í Lengjubikar karla í knattspyrnu í gærkvöld þegar liðin áttust við í Reykjaneshöllinni. Grindavík vann öruggan 4-0 sigur og er áfram í fjórða sæti í riðli 1, nú með sjö stig eftir fimm leiki. Tindastóll er aftur á móti í neðsta sæti með eitt stig eftir jafnmarga leiki Stefán Þór Pálsson lánsmaður frá …