Vormót JSÍ

Ungmennafélag Grindavíkur Judó

Sigurpáll Albertsson vann til tveggja silfurverðlauna á vormóti JSÍ.

Tveir fulltrúar frá Grindavík kepptu á vormóti JSÍ 2013, þeir Marcin Ostrowski og Sigurpáll Albertsson.

 

Marcin keppti í -66kg 15-16 ára. Hann vann fyrstu glímuna sína, en gat svo ekki haldið áfram keppni vegna meiðsla og komst því ekki á verðlaunapall.


Sigurpáll keppti í tveimur aldursflokkum. Í 17-19 ára flokki var hann færður upp um þyngdarflokk og keppti í 100+kg. Einnig keppti hann í -100kg flokki fullorðinna.

Í 17-19 ára aldursflokknum keppti hann tvær glímur og vann aðra þeirra og hafnaði því í öðru sæti.

Í fullorðinsflokknum keppti hann 3 glímur. Hann vann tvær þeirra og krækti þannig í annað silfur.

 

Myndin er af Sigurpáli (til vinstri) en er þó ekki af þessu móti.