Unglingaráð knattspyrnudeildar UMFG auglýsir eftir áhugasömu fólki til starfa til að stýra starfi yngri flokkanna í Grindavík og aðstoða við ýmis verkefni. Nánari upplýsingar veitir Gauja, netfang gauja@grindavik.is, eða í síma 893 4272.
Þriggja ára samningur við Guðjón
Guðjón Þórðarson var í gærkvöldi ráðinn þjálfari Grindavíkurliðsins í knattspyrnu til næstu þriggja ára. Hann tekur við af Ólafi Erni Bjarnasyni sem hugsanlega mun spila áfram með liðinu. Milan Stefán Jankovic verður aðstoðarþjálfari Guðjóns. Mynd: Vikari.is
Grindavík áfram í Lengjubikarnum
Grindavíkurliðið mætti Haukum í Lengjubikar karla í körfubolta í gær. Okkar menn sigruðu 93-79 og eru þar með komnir áfram í keppninni þar sem þeir hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í B-riðli. Páll Axel Vilbergsson var enn og aftur stigahæstur með 24 stig og hitti m.a. úr 4 af 5 af þriggja stiga skotum. J’Nathan Bullock skoraði 20 stig eins …
Vinnusigur gegn Val
Grindavík sigraði Val 83-73 í Vodafone-höllinni í gær, en heimamenn höfðu yfirhöndina stóra hluta leiksins. Reynslan kom til bjargar í fjórða leikhlutanum og því stóðu gestirnir uppi sem sigurvegarar. „Þetta var heppnissigur hjá okkur í kvöld,” sagði Páll Axel Vilbergsson, leikmaður Grindvíkinga, eftir sigurinn í gær. „Við vorum að elta nánast allan leikinn og þetta var bara skelfilegur leikur af …
Grindavík lagði Fjölni
Grindavík sigraði Fjölni með 82 stigum gegn 78 í Lengjubikarnum í körfubolta en leikið er með nýjum fyrirkomulagi í ár en liðum er skipt í riðla. Páll Axel Vilbergsson skoraði 20 stig fyrir Grindavík, Giordan Watson 17 og Sigurður Gunnar Þorsteinsson 12. Grindavík gekk erfiðlega að hrista Fjölnispilta af sér. Staðan í hálfleik var 38-33, Grindavík í vil. Þar með …
Goran Lukic tekur við kvennaliðinu
Goran Lukic hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu í Grindavík. Hann tekur við af Jóni Þór Brandssyni. Grindavík féll úr úrvalsdeildinni og leikur því í 1. deild á næstu leiktíð. Goran Lukic hefur lengi verið búsettur í Grindavík. Hann er með UEFA-B gráðu og á langan knattspyrnuferil að baki. Hann lék m.a. hér á landi með Grindavík, Stjörnunni, Víði …
Sigur hjá stelpunum og ÍG
Kvennalið Grindavíkur hóf keppni í B-deildinni í körfubolta um helgina og lagði KFÍ að velli í tveimur leikjum fyrir vestan. Leikirnir fóru 48-46 og 55-47, Grindavík í vil þannig að stelurnar byrjuðu vel. Þá tók ÍG sig til í B-deild karla og skellti Ármanni 83-74. Guðmundur Bragason sem er orðinn 44 ára fór á kostum hjá ÍG og skoraði 21 …
Björn Lúkas krækti í brons á Norðurlandamótinu í Jiu Jitsu
Glímukappinn Björn Lúkas Haraldsson gerði sér lítið fyrir og krækti sér í brons á opna Norðurlandamótinu í brasilísku Jiu Jitsu í sínum þyngdarflokki. Björn Lúkas er aðeins 16 ára en hann fékk undanþágu til að keppa á mótinu sem er fyrir fullorðna.
Bændaglíma GG á laugardaginn
Bændaglíma og lokahóf GG verður laugardaginn 5. nóvember en þetta er síðasta golfmót ársins. Bændaglíman hefst kl. 12:30 stundvíslega. Lokahófið og verðlaunaafhending verður í golfskálanum strax að bændaglímu lokinni. Föstudaginn 28. október 2011 tók nýtt vallarmat gildi á Húsatóftavelli. Eftir vallarmatið hefur heildarlengd vallar á gulum teigum minnkað um 126m, úr 5381m í 5255m. Af rauðum teigum um 121m, eða úr …
Grindavík eitt liða á toppnum
Grindavík trónir eitt liða á toppnum í úrvalsdeild karla í körfubolta eftir öruggan 20 stiga sigur á Tindastóli 85-65. Það er ljóst að nú stefnir í afar spennandi körfuboltavertíð hjá strákunum sem munu gera harða atlögu að þeim titlum sem eru í boði. Grindvíkingar lögðu grunninn að góðum sigri sínum strax í fyrsta leikhluta þar sem liðið hafði betur 29-13. Þrátt fyrir …