Grindavík mætir Stjörnunni öðru sinni í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfubolta í Ásgarði í Garðabæ í kvöld kl. 19:15. Grindavík leiðir einvígið 1-0 en þrjá sigurleiki þarf til þess að komast í úrslitaleikina. Sigurbjörn Dagbjartsson stjórnarmaður í körfuknattleiksdeildinni, skrifar pistil um leikinn á heimasíðu UMFG og segir m.a. „Enn og aftur snýst þetta um hvernig við Grindvíkingar mætum til leiks. Með …
Grindavík í kjörstöðu eftir sigur í öðrum leik
Grindavík lagði Stjörnuna að velli með 3ja stiga mun, 71 stigi gegn 68, í æsispennandi leik í kvöld í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta karla. Þar með leiðir Grindavík einvígið 2-0 og getur klárað Stjörnuna með því að vinna þriðja leikinn á mánudaginn. Það var hart barist strax í fyrsta leikhluta í viðureign Stjörnunar og Grindavíkur sem fram fór í Ásgarði …
Fannar Helgason í 2. leikja bann!
KKÍ hefur dæmt í kæru Keflvíkinga á hendur Fannari Helgasyni, leikmanni Stjörnunnar og er niðurstaðan 2. leikja bann. Hann leikur því ekki næstu 2 leiki sem gætu orðið síðustu leikir Stjörnunnar á þessu tímabili þar sem Grindavík leiðir 1-0 og þarf 2 sigra í viðbót. En sem fyrr segi ég og skrifa að þátttaka Fannars eða fjarvera, ríður ekki baggamuninn …
Áfram heldur fjörið
Grindavík og Stjarnan mætast öðru sinni í rimmu sinni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla annað kvöld, föstudag og fer leikurinn fram í Ásgarði þeirra Stjörnumanna í Garðabænum. Mikið fjör er í úrslitakeppninni og í þessum skrifuðu orðum er Þórsarar úr Þorlákshöfn að rúlla KR-ingum upp og jafna þar með rimmu sína við Vesturbæjarstórveldið. Skyldu Stjörnumenn gera slíkt hið sama …
Skráning á bikarmót 3.
Þriðja TKÍ Bikarmótið fyrir veturinn 2011/2012 Bikarmótið verður haldið í Íþróttamiðstöð Áramanns í Laugardal, Engjavegi 7, dagana 21. og 22. apríl næstkomandi. Mótið hefst kl 9.00. Yngsti hópurinn (börn yngri en 12 ára) keppir á laugardeginum á þrem gólfum, einu poomsae og tveimur sparring. Á sunnudeginum keppa allir sem eru 12 ára og eldri (cadet, junior, senior og superior) á …
Góð byrjun – Þorleifur í stuði
Grindavík lagði Stjörnuna 83-74 í fyrsta undanúrslitaeinvígi liðanna í úrvalsdeild karla í körfubolta. Þetta var hörku leikur tveggja öflugra liða en vinna þarf 3 leiki til þess að komast í úrlitaleikinn. Það var liðsheild og breidd heimamanna sem tryggði þennan sigur, en þeir leiddu nánast allan leikinn. J’Nathan Bullock átti stórleik fyrir Grindavík og Þorleifur Ólafsson átti einnig frábæran leik. Grindavík 83-74 …
Helgi Jónas: Ströggl á æfingum framan af í fríinu
Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Grindavíkur var hæstánægður með sigurinn en telur sitt lið geta bætt sig, sérstaklega sóknarlega. „Ég er sáttur við varnarleikinn og fráköstin en við þurfum að skoða sóknarleikinn hjá okkur. Hvernig þeir brugðust við ýmsum atriðum sem við ætluðum að nýta okkur í kvöld en gekk ekki,“ sagði Helgi Jónas. Grindvíkingar fengu níu daga frí frá því liðið …
Vinnum ef við spilum okkar leik
Þorleifur Ólafsson átti frábæran leik hjá Grindvíkingum gegn Stjörnunni. Hann skoraði 16 stig og nýtti skot sín afar vel. „Við misstum einbeitingu í hvert einasta skipti sem við náðum tíu stiga forystu og þeir komu tilbaka. Stjarnan er með hörkulið og ef við slökum á koma þeir tilbaka eins og þeir gerðu. Í hvert einasta skipti,“ sagði Þorleifur hógvær á …
Bogi úr leik – Englendingur til skoðunar
Bogi Rafn Einarsson, varnarmaður Grindvíkinga, mun missa að minnsta kosti af fyrri hluta tímabilsins vegna meiðsla. Þá fær Grindavík enskan leikmenn til reynslu í vikunni. Bogi fór í aðgerð á öxl í vetur og ljóst er að hann verður ekki klár fyrr en í fyrsta lagi síðari hluta sumars að því er fram kemur á fotbolti.net Síðastliðið sumar spilaði Bogi …
Nú hefst alvaran
„Nú hefst alvaran þegar Stjarnan kemur í heimsókn í kvöld. Ég á von á svakalegri rimmu enda Stjarnan með svaka trukka innanborðs og má búast við að hnefarnir og olnbogar tali. Þetta verður örugglega mögnuð skemmtun fyrir áhorfendur,“ segir Jón Gauti Dagbjartsson stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild UMFG um rimmu Grindavíkur og Stjörnunnar í undanúrslitum Íslandsmótsins. Mikið hefur gengið á eftir að …








