Jæja gott fólk. Stuðið er að byrja! Að því tilefni er ekki úr vegi að byrja skrif á heimasíðunni og stefni ég á að vera tiltölulega virkur á þeim vettvangi í vetur. Ég kalla pistilinn Fullt hús titla því við erum með fullmannað lið, búnir að vinna þá titla sem hafa verið í boði. Byrjuðum á að vinna Reykjanesmeistaratitilinn eftir …
Grindavík meistari meistaranna
Íslandsmeistarar Grindavíkur tryggðu sér sæmdarheitið MEISTARAR MEISTARANNA annað árið í röð eftir að hafa lagt bikarmeistara Keflavíkur að velli í Röstinni með 92 stigum gegn 83. Þetta er fyrsti titilinn sem Grindavík vinnur undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar og jafnframt fyrsti titilinn á nýju tímabili í karlakörfunni. Aaron Broussard átti stórleik hjá Grindavík og skoraði 36 stig en Sigurður Gunnar …
Grindavík tapaði fyrir KR
Grindavik tapaði fyrir KR með 11 stiga mun, 62-51, í 1. umferð Íslandsmótsins í körfubolta. Nýr bandarískur leikmaður Grindavíkurliðsins lék ekki með og munaði um minna. Þá var Ólöf Helga Pálsdóttir heldur ekki með vegna meiðsla. Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir var stigahæst með 14 stig og Helga Rut Hallgrímsdóttir kom næst með 13. Petrúnella Skúladóttir skoraði 9 stig og Guðrún Ósk …
Meistarar meistaranna í Röstinni
Körfuboltavertíðin hefst formlega í kvöld þegar Íslandsmeistarar Grindavíkur taka á móti bikarmeisturum Keflavíkur í Röstinni kl. 19:15 í árlegum leik Meistarar meistaranna. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna í Röstina en hér er stór bikar í húfi. Allir ágóði af leiknum rennur til landsliðsstarfs KKÍ. Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt fyrir börn.
KR 62 – Grindavík 51
Dominosdeild kvenna byrjaði í gær þar sem Grindavík mætti KR í DHL höllinni. Leikurinn var jafn í öllum leikhlutum nema öðrum en í þeim gerðu KR 17 stig gegn 6 stigum Grindavíkur. Þessi 11 stiga munur voru jafnfram í lokatölum leiksins sem endaði 62-61 fyrir KR. Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir var stigahæst með 14 stig, 3 fráköst og 2 stoðsendingar. Helga …
Meistarar meistaranna í kvöld
Hinn árlegi leikur Íslandsmeistara og bikarmeistara síðasta tímabils fer fram í Grindavík í kvöld klukkan 19:15 Keflavík varð bikarmeistari og byrjar því tímabilið með leik Grindavíkur og Keflavík í Röstinni en það er leikur sem enginn ætti að missa af. Aðgangseyrir er 1.000 kr en frítt fyrir börn og fer allur ágóði af leiknum rennur til landliðsstarf KKÍ
Grindavík eru meistarar meistaranna
Grindavík lagði Keflavík í keppni meistara síðasta tímabils og eru því réttkrýndir meistarar meistaranna. Leikurinn var fjörlegur þar sem Grindavík tók yfirhöndina strax á fyrstu mínútunum. Keflvíkingar minnkuðu þó muninn og var jafnt með liðunum mest allan leikinn. Það var þriðji leikhluti sem skar úr á milli liðanna en í þeim fengu gestirnir nokkur tæknivíti á sig dæmd og okkar …
Vel heppnuð æfingaferð til Tenerife
Körfuknattleiksvertíðin er að hefjast. Bikar er í húfi í Röstinni annað kvöld þegar Íslandsmeistarar Grindavíkur taka á móti bikarmeisturum Keflavíkur kl. 19:15 í árlegum leik Meistarar meistaranna. Töluverðar breytingar hafa orðið á liði meistaranna og nýr maður er kominn í brúnna. Helgi Jónas Guðfinsson sagði starfi sínu lausu að lokinni síðustu leiktíð og við keflinu tók Sverrir Þór Sverrisson. Vefurinn karfan.is …
KR – Grindavík í kvöld
Fyrsti leikur Grindavíkur í efstu deild kvenna í tvö ár fer fram í kvöld þegar stelpurnar mæta KR í DHL-höllinni Leikurinn hefst klukkan 19:15 Í gær var haldin blaðamannafundur hjá KKÍ þar sem meðal annars var birt spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna. Grindavík er spáð sjöunda sæti og þar með falli sem er auðvitað tóm vitleysa:1. Keflavík · 175 stig2. …
Grindavík Reykjanesmeistari 2012
Grindavík tryggði sér sigurinn í Reykjanesmóti karla í körfubolta með fimm stiga sigri á Stjörnunni 82-77. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af. Í fjórða leikhluta keyrðu Grindvíkingar fram úr Stjörnumönnum og unnu 82-77. Grindavík er Reykjanesmeistari 2012 sama hvernig viðureign Keflavíkur og Breiðabliks fer en Grindavík hefur betur innbyrðis gegn Keflavík þó bæði lið hafi unnið fjóra leiki og …










