Grindavík meistari meistaranna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Íslandsmeistarar Grindavíkur tryggðu sér sæmdarheitið MEISTARAR MEISTARANNA annað árið í röð eftir að hafa lagt bikarmeistara Keflavíkur að velli í Röstinni með 92 stigum gegn 83.

Þetta er fyrsti titilinn sem Grindavík vinnur undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar og jafnframt fyrsti titilinn á nýju tímabili í karlakörfunni.

Aaron Broussard átti stórleik hjá Grindavík og skoraði 36 stig en Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 21 stig. Darrel Keith Lewis skoraði 17 stig fyrir Keflavík og Valur Valsson og Magnús Þór Gunnarsson skoruðu báðir 15 stig.

Grindvíkingar sem voru á heimavelli eins og venjan er með Íslandsmeistarana, voru að vinna Meistarakeppni KKÍ í fjórða sinn en þeir unnu hana einnig 1996, 1998 og 2011. Njarðvíkingar hefur unnið þessa keppni oftast eða sjö sinnum.

Grindvíkingar, með þá Aaron Broussard og Sigurð Gunnar Þorsteinsson í fararbroddi, komust í 13-2 eftir rúmar fjórar mínútur en það tók Keflvíkinga aðeins rúmar þrjár mínútur að snúa leiknum við og komast yfir í 18-16. Grindvíkingar bættu þá aftur í og voru 26-23 yfir eftir fyrsta leikhlutann.

Grindavík var komið í 28-23 í upphafi annarsleikhluta en skoraði síðan bara tvö stig á rúmum fjórum mínútum og á meðan náði Keflavík að komast yfir í 31-30. Grindvíkingar leiddu með einu stigi í hálfleik, 42-41, eftir að Keflvíkingurinn Hafliði Már Brynjarsson endaði hálfleikinn á því að setja niður þriggja stiga körfu.

Sigurð Gunnar Þorsteinsson skoraði 15 stig í fyrri hálfleiknum og Aaron Broussard var með 12 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar. Darrel Keith Lewis var með 11 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar hjá Keflavík.

Grindavíkurliðið byrjaði seinni hálfleik vel og var komið níu stigum yfir, 54-45, eftir fjórar mínútur. Grindavík var síðan með 14 stiga forskot, 70-56, fyrir lokaleikhlutann eftir að hafa unnið þriðja leikhlutann 28-15.

Keflvíkingar gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn í lokaleikhlutanum en Grindvíkingar héldu út og lönduðu fyrsta titli vetrarins. / Vísir.is

Grindavík-Keflavík 92-83 (26-23, 16-18, 28-15, 22-27)

Stig Grindavíkur : Aaron Broussard 36/7 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 21/7 fráköst/4 varin skot, Samuel Zeglinski 10/8 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 7/7 fráköst, Þorleifur Ólafsson 6, Jóhann Árni Ólafsson 6/4 fráköst/5 stoðsendingar, Ármann Vilbergsson 4, Jón Axel Guðmundsson 2.

Stig Keflavíkur: Darrel Keith Lewis 17/6 fráköst/5 stoðsendingar, Magnús Þór Gunnarsson 15, Valur Orri Valsson 15/5 stoðsendingar, Kevin Giltner 14, Snorri Hrafnkelsson 10, Almar Stefán Guðbrandsson 5/5 fráköst, Andri Daníelsson 4/4 fráköst, Hafliði Már Brynjarsson 3.

Mynd: Vf.is