Fyrsta bikarmótið fyrir veturinn 2012-2013 Bikarmótið verður haldið í Í þróttahúsinu við Akurskóla í Reykjanesbæ. 24 og 25. nóvember næstkomandi. Mótið hefst kl 10:00. Yngsti hópurinn (11 ára og yngri á mótsdag) keppir á laugardeginum á þr em gólfum, einu poomsae og tvem sparring. Á sunnudeginum keppa allir sem eru 12 ára og eldri (cadet, junior, senior og superior) á …
Grindavík skellti Skallagrími
Grindavík skellti Skallagrími í Lengjubikar karla í köfubolta í gærkvöldi með 27 stiga mun, 108 stigum gegn 81. Grindavík skoraði 37 stig í fyrsta leikhluta og kláraði svo andstæðinga sína með kröftugum lokaspretti. Þar með er ljóst að Grindavík og Keflavík mætast í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni hvort liðanna kemst í undanúrslit. Staðan í hálfleik var 56 – …
Ólafur Örn í Fram
Grindvíkingurinn Ólafur Örn Bjarnason hefur gengið til liðs við Fram en hann skrifaði undir samning við félagið í dag. ,,Knattspyrnudeild Fram býður Ólaf Örn velkominn í félagið og vonast til að sjá hann sýna sínar bestu hliðar í sumar,“ segir á heimasíðu Fram. Ólafur kom til Grindavíkur úr atvinnumennsku árið 2010 og tók við sem spilandi þjálfari liðsins. Hann hætti …
Lengjubikarleikur dagsins
Grindavík fer aftur til Borganes í kvöld þar sem strákarnir mæta Skallagrím í Lengjubikarnum. Leikurinn er á hefðbundnum körfuboltatíma 19:15. Liðin mættust í síðustu umferð Dominosdeildarinnar í hörkuleik þar sem Grindavík fór með sigur 93-86. Keflavík sigraði Hauka í gær og tróna því á toppi A riðilsins, Grindavík getur jafnað þá með sigri í kvöld. Ef allt fer að …
Hreinn úrslitaleikur við Keflavík!
Eftir 5. umferðina í Lengju-fyrirtækjabikarnum, er ljóst að við mætum nágrönnum okkar úr Keflavík, í hreinum úrslitaleik á heimavelli um hvort liðið kemst í FINAL FOUR! Við unnum Skallagrím auðveldlega á útivelli kvöld, 81-108. Skv. tölfræðinni góðu var Jóhann Árni Ólafsson okkar besti maður í kvöld og setti 24 stig og gaf 6 stoðsendingar. Hann var ekkert að flækja stigaskorun …
Stelpurnar tóku KR í karphúsið
Grindavíkurstelpur tóku KR í karphúsið í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í dag. Grindavík vann með 20 stiga mun, 80 stigum gegn 60. Grindavík byrjaði leikinn með miklum látum og hafði 21 stigs forystu eftir fyrsta leikhluta. Staðan í hálfleik var 46-23, Grindavík í vil. Guðmundur Bragason stýrði liðinu af bekknum. Nýráðinn þjálfari liðsins Crystal Smith skoraði 24 stig en maður …
Grindavík – KR í dag
Grindavík og KR mætast í Grindavík klukkan 16:30 í Dominosdeild kvenna. Heil umferð fer fram í dag, Snæfell og Valur mætast klukkan 15:00 og klukkan 16:30 er það leikur Grindavíkur og KR, Keflavík – Haukar og Njarðvík – Fjölnir. Það eru nokkur stig á milli liðanna þar sem KR hefur byrjað betur í vetur. Liðin mættust í fyrstu umferðinni þar …
Scott Ramsay og Magnús framlengja
Scott Ramsay og Magnús Björgvinsson hafa báðir skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Grindavík. Leikmennirnir voru báðir samningslausir en þeir hafa nú ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum í fyrstu deildinni næsta sumar. Hinn 37 ára gamli Ramsay var í minna hlutverki hjá Grindavík í sumar en oft áður en hann skoraði eitt mark í átján leikjum í Pepsi-deildinni. Ramsay …
Læti í Fjósinu en grindvískur sigur
Grindavík sigraði Skallagrím með 93 stigum gegn 86 í úrvalsdeild karla í körfubolta í gærkvöldi í Borgarnesi í hörku leik þar sem úrslitin réðust á vítalínunni á lokasprettinum. Fjósið í Borgarnesi var fullt að vanda þegar Íslandsmeistararnir komu í heimsókn. Hart var barist og Páll Axel Vilbergsson reyndist sínum gömlu félögum erfiður til að byrja með og skoraði 17 …
Flottur sigur á erfiðum útivelli
Grindavík gerði góða ferð í fjós fyrrum liðsfélaga, Páls Axels og félaga hans í Skallagrími í kvöld og unnu eftir dramatískar lokamínútur. Ég var ekki á leiknum og ætla því að vísa í flotta umfjöllun á karfan.is um leikinn, http://www.karfan.is/read/2012/11/08/thrandur-i-skallagrimsgotu Skv. þessu var Sammy frábær með 3falda tvennu (27stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar). Auk þess tapaði hann bara 1 …









