Bikarmót 24.-25 nóv í Keflavík

Ungmennafélag Grindavíkur Taekwondo

Fyrsta bikarmótið fyrir veturinn 2012-2013

Bikarmótið verður haldið í Í þróttahúsinu við Akurskóla í Reykjanesbæ.

24 og 25. nóvember næstkomandi. Mótið hefst kl 10:00. Yngsti hópurinn (11 ára og yngri á mótsdag) keppir á laugardeginum á þr em gólfum, einu poomsae og tvem sparring. Á sunnudeginum keppa allir sem eru 12 ára og eldri (cadet, junior, senior og superior) á tvem gólfum. Mótstjórn áskilur sér rétt til að breyta þessu fyrirkomulagi í samræmi við skráningar.

 

Mótsfyrirkomulag verður eins og verið hefur á bikarmótum.

Í yngri flokkunum á laugardag verður leitast við að skipta keppendum í 4 manna hópa sem keppa í sparring en í poomsae keppa tveir hópar saman (8 iðkendur) .

 

Á sunnudeginum verður leitast við að fara eftir reglum WTF í flokka skiptingu og mótsfyrirkomulagi, svo framarlega sem það er hægt, bæði í sparring og poomsae. Ávallt hefur verið þörf á sameiningum í flokkana og því áskilur móstjórn sér þann rétt að sameina fámenna flokka.

 

Keppnisgjaldið er 1500 fyrir 11 ára og yngri og 2500 fyrir 12 ára+ og greiðist til þjáfara. Skráningar sendist á ruttkd@gmail.com með upplýsingum um nafn, aldur, belti, þyngd, kennitölu, tölvupóst og símanúmer.Skráningarfrestur er til og með sunnudeginum 18. nóvember