Útlitið er orðið heldur dökkt hjá Grindavíkurstúlkum eftir tveggja stiga tap gegn Njarðvík í botnbaráttu úrvalsdeildarinnar í körfubolta kvenna, 69-71. Grindavík situr í næst neðsta sætinu, fjórum stigum á eftir Njarðvík, og fall blasir við. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en Lele Hardy tryggði Njarðvík sigur af vítalínunni í blálokin. Grindavík – Njarðvík 69-71 (18-22, 11-11, 22-16, 18-22) …
Stefán Þór lánaður til Grindavíkur
Stórefnilegur framherji, Stefán Þór Pálsson hefur verið lánaður frá Breiðabliki til Grindavíkur út komandi leiktíð en þetta staðfesti Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindavíkur við Fótbolta.net í gær. Stefán Þór sem er 18 ára gamall kom til Breiðabliks frá ÍR fyrir síðustu leiktíð og spilaði 3 leiki í Pepsi-deildinni í fyrrasumar. Hann hafði vakið athygli sumarið áður þegar hann hóf meistaraflokksferil sinn með …
Steinlágu fyrir nágrönnunum
Grindavíkurstelpur steinlágu fyrir toppliði Keflavíkur 86-58 í úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöldi. Grindavík stóð í Keflavík í fyrri hálfleik en í þeim síðari dró í sundur með liðunum. Grindavík er því áfram í næst neðsta sæti deildarinnar og hörð barátta um að halda sæti sínu í deildinni. Keflavík-Grindavík 86-58 (18-18, 19-17, 30-11, 19-12) Grindavík: Crystal Smith 18/4 fráköst, Petrúnella Skúladóttir …
Grindavík tekur á móti KR
Grindavík tekur á móti KR í Röstinni kl. 19:15 í úrvalsdeild karla í körfubolta. Búast má við hörku leik þrátt fyrir að KR-ingar hafi ekki leikið vel upp á síðkastið en samkvæmt heimildum er búist við rútu stuðningsmanna KR til Grindavíkur. Grindvíkingar eru afar ósáttir við leikbannið sem Jóhann Árni Ólafsson fékk í vikunni og ætla að láta KR-inga finna …
Alltaf gaman að vinna KR
Grindavík hélt áfram toppsætinu í úrvalsdeild karla í körfubolta eftir 13 stiga sigur á KR, 100-87. Leikurinn var ákaflega sveiflukenndur en góður endasprettur Grindvíkinga gerði útslagið að þessu sinni sem og stórleikur Samuel Zeglinski. Grindavík byrjaði með miklum látum og var með 15 stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 24-9. Grindavík náði mest 21 stigs forystu en þá var eins og …
Keflavík 86 – Grindavík 58
Jafn fyrri hálfleikur dugði ekki gegn Keflavík í gær þar sem nýkringdir bikarmeistarar gáfu í seinni hálfleik og sigurðu með 28 stigum. Staðan var 37-35 í hálfleik en heimastúlkur settu þá í annan gír. Stigahæst hjá Grindavík var Crystal Smith með 18 stig. Alls 10 stelpur komust á stigatöfluna í gær sem er ánægjulegt. Tvíburarnir voru með flest fráköst, átta …
Grindavík – KR í kvöld
Grindavík tekur á móti KR í nítjándu umferð Dominosdeild karla. Grindavík er með tveggja stiga forskot á toppnum en þurfa að sýna betri leik en gegn Stjörnunni í síðustu umferð til að halda sætinu. Einungis 4 umferðir eru eftir en Grindavík á löngu ferðalögin eftir og það gegn liðum sem eru að berjast fyrir sæti sínu og sæti í úrslitakeppninni. …
Nágrannaslagur í kvennakörfunni
Grindavíkurstelpur sækja Keflavík heim í úrvalsdeild kvenna í körfubolta kl. 19:15. Þetta verður án efa erfiður leikur fyrir Grindavík enda trónir Keflavík á toppi deildarinnar. Grindavík er hins vegar í fallsæti, í því næst neðsta.
Daníel Leó á úrtaksæfingar hjá U19
Daníel Leó Grétarsson leikmaður Grindavík hefur verið kallaður inn á úrtaksæfingar hjá U19 ára landsliðinu í knattspyrnu um næstu helgi. 25 manna hópur hefur verður kallaður inn á æfingarnar en þjálfari liðsins er Kristinn R. Jónsson. Daníel Leó hefur átt fast sæti í liði Grindavíkur á undirbúningstímabilinu og staðið sig með mikilli prýði.
Keflavík – Grindavík
Heil umferð er í Dominosdeild kvenna í kvöld og þar á meðal leikur Grindavíkur og Keflavík. Leikurinn fer fram í Toyota höllinni og hefst klukkan 19:15. Keflavík er á toppi deildarinnar en með góðum leik geta Grindavík sigrað í kvöld. Keflavík tapaði síðasta leik, gegn Haukum og sömuleiðis gegn Val í byrjun mánaðarins þannig að þær er ekki alveg ósigraðar …









