Aðalfundur Knattspyrnudeildar Grindavíkur fer fram fimmtudaginn 25. febrúar kl. 18:00 í Gula húsinu við Austurveg. Vegna 20 manna samkomutakmarkanna þarf að skrá sig til fundarins og er það gert í skráningarforminu hér að neðan eða með tölvupósti á umfg@centrum.is Dagskrá fundarins er svohljóðandi: 1) Fundarsetning 2) Kosinn fundarstjóri – Kosinn fundarritari 3) Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram. 4) Formaður félagsins …
Kanadískur framherji til liðs við Grindavík
Grindavík hefur samið við kanadíska framherjann Christabel Oduro sem mun leika með félaginu í Lengjudeild kvenna í sumar. Christabel er 28 ára gömul og á að baki 5 landsleiki með Kanada. Christabel er væntanleg til Íslands á næstu vikum og verður vonandi góður liðsstyrkur fyrir ungt lið Grindavíkur sem vann sig upp í Lengjudeildina á síðasta tímabili eftir að hafa …
Ólafur kemur á láni til Grindavíkur
Varnarmaðurinn Ólafur Guðmundsson hefur gengið til liðs við Grindavík og mun leika með félaginu í sumar í Lengjudeild karla í fótbolta. Ólafur er 19 ára gamall og kemur á láni út tímabilið frá uppeldisfélagi sínu Breiðablik. Ólafi er ætlað stórt hlutverk hjá Grindavík í sumar í stöðu vinstri bakvarðar hjá félaginu. Þessi ungi en stæðilegi varnarmaður á að baki 8 …
Þröstur Mikael til liðs við Grindavík
Dalvíkingurinn Þröstur Mikael Jónasson mun leika með Grindavík í Lengjudeildinni í sumar en hann hefur gert samning við félagið til út tímabilið 2022. Þröstur er miðju- og varnarmaður að upplagi og lék með Grindavík á miðjunni í sigurleik gegn Keflavík í fótbolta.net mótinu um síðustu helgi. „Við erum mjög ánægðir með að hafa samið við Þröst sem er kraftmikill og …
Alexander Veigar leggur skóna á hilluna
Alexander Veigar Þórarinsson hefur ákveðið leggja skóna á hilluna og mun því ekki leika með Grindavík í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Alexander Veigar er 32 ára gamall og hefur alls leikið 241 leik í deild og bikar á ferlinum og skorað í þeim 47 mörk. Alexander er uppalinn hjá Grindavík en hefur einnig leikið með Fram, Reyni Sandgerði, BÍ/Bolungarvík og …
Unnur valin í U17 landslið Íslands
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið leikmannahóp til æfinga 25.-27. janúar n.k. Unnur Stefánsdóttir, leikmaður Grindavíkur, hefur verið valin í hópinn. Virkilega vel gert hjá Unni sem var valin efnilegasti leikmaður ársins 2020 hjá meistaraflokki kvenna sem sigraði í 2. deild kvenna á síðustu leiktíð. Til hamingju Unnur!
Jón Ólafur nýr þjálfari meistaraflokks kvenna
Jón Ólafur Daníelsson hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Grindavík í knattspyrnu og mun stýra liðinu í Lengjudeildinni á næsta keppnistímabili. Jón Ólafur tekur við þjálfun liðsins af Ray Anthony Jónssyni sem lét af störfum sem þjálfari liðsins í vetur. Grindavík fangaði sigri í 2. deild kvenna í haust og leikur því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. Ekki þarf …
Mirza Hasecic semur við Grindavík
Grindavík hefur gert samning við Mirza Hasecic sem mun leika með Grindavík út tímabilið 2022. Mirza er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið bakvarðarstöður, á væng eða á miðju. Mirza er 23 ára gamall en var frá allt síðasta keppnistímabil vegna meiðsla. Hann er búsettur hér í Grindavík en er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði og hefur alls leikið …
Emma Fanndal skrifar undir sinn fyrsta samning
Emma Fanndal Jónsdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Knattspyrnudeild Grindavíkur og mun leika með meistaraflokki kvenna næstu tvö keppnistímabil. Emma er 16 ára gömul og lék sitt fyrsta keppnistímabil sl. sumar með liði Grindavíkur sem fagnaði sigri í 2. deild kvenna. Emma er sóknarmaður og tók þátt í 9 leikjum með meistaraflokki Grindavíkur sl. sumar í deild og …
Einhamar styrkir áfram knattspyrnudeild Grindavíkur
Sjávarútvegsfyrirtækið Einhamar og Knattspyrnudeild Grindavíkur skrifuðu í dag undir nýjan samstarfssamning til næstu tveggja ára. Einhamar hefur undanfarin ár staðið þétt að baki íþróttum í Grindavík og mun áfram styrkja við Knattspyrnudeild Grindavíkur líkt og undanfarin misseri. „Við erum svo heppin að eiga öfluga styrktaraðila sem standa þétt við bakið á okkur þrátt fyrir þá erfiðleika sem þjóðin er að …