Kanadískur framherji til liðs við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík hefur samið við kanadíska framherjann Christabel Oduro sem mun leika með félaginu í Lengjudeild kvenna í sumar. Christabel er 28 ára gömul og á að baki 5 landsleiki með Kanada.

Christabel er væntanleg til Íslands á næstu vikum og verður vonandi góður liðsstyrkur fyrir ungt lið Grindavíkur sem vann sig upp í Lengjudeildina á síðasta tímabili eftir að hafa unnið 2. deild kvenna.

Auk þess að hafa leikið í heimalandi sínu Kanada þá hefur Christabel einnig leikið í sterkum deildum í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Ísrael og Svíþjóð. Nú síðast lék hún með félaginu Birkirkara á Möltu.

Christabel er reynslumikill framherji, snögg og kröftug. Knattspyrnudeild Grindavíkur býður hana velkomna til félagsins og væntum við mikils af henni.