Aðalfundur knattspyrnudeildar Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Grindavíkur fer fram fimmtudaginn 25. febrúar kl. 18:00 í Gula húsinu við Austurveg.

Vegna 20 manna samkomutakmarkanna þarf að skrá sig til fundarins og er það gert í skráningarforminu hér að neðan eða með tölvupósti á umfg@centrum.is

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1) Fundarsetning
2) Kosinn fundarstjóri – Kosinn fundarritari
3) Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
4) Formaður félagsins leggur fram skýrslu stjórnar.
5) Formaður unglingaráðs les skýrslu unglingaráðs.
6) Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga aðalstjórar og félagsins í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar.
7) Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
8) Kosning formanns
9) Kosning stjórnar
10) Kosning varastjórnar
11) Önnur mál.

Framboð til stjórnar berist á umfg@centrum.is eigi síðar en kl. 18:00 mánudaginn 22. febrúar. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Már Gunnarsson, form. knattspyrnudeildar í síma 865-2900