Jón Ólafur nýr þjálfari meistaraflokks kvenna

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Jón Ólafur Daníelsson hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Grindavík í knattspyrnu og mun stýra liðinu í Lengjudeildinni á næsta keppnistímabili. Jón Ólafur tekur við þjálfun liðsins af Ray Anthony Jónssyni sem lét af störfum sem þjálfari liðsins í vetur. Grindavík fangaði sigri í 2. deild kvenna í haust og leikur því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.

Ekki þarf að kynna Jón Óla fyrir Grindavíkingum. Hann starfaði hjá félaginu um miðjan síðasta áratug og náði frábærum árangri hjá yngri flokkum félagsins. Jón Óli er þrautreyndur þjálfari og kemur frá Vestmannaeyjum þar sem hann hefur komið að þjálfun flestra flokka, allt frá yngri flokka þjálfun og upp í þjálfun meistaraflokka félagsins hjá báðum kynjum.

„Við erum afar glöð með að hafa tryggt okkur þjónustu Jóns Óla við þjálfun meistaraflokksins á tímabilinu sem er framundan,“ segir Petra Rós Ólafsdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Grindavík.

„Við erum að fá mjög hæfan þjálfara til starfa sem þekkir félagið mjög vel og hefur náð frábærum árangri á sínum ferli. Hann fær ungan en spennandi leikmannahóp í hendurnar og við erum þess fullviss um að hann geti gert okkar leikmenn enn betri. Við förum með tilhlökkun inn í nýtt ár og við teljum að ráðning Jóns Óla sé til marks um þann metnað sem við viljum sýna í kvennaknattspyrnunni í Grindavík.“

Jón Óli hitti leikmenn liðsins í dag og mun stýra sinni fyrstu æfingu hjá félaginu á nýjan leik í næstu viku.

Knattspyrnudeild Grindavíkur fangar því að fá Jón Óla aftur til starfa hjá félaginu.

Áfram Grindavík!

Petra Rós Ólafsdóttir, formaður kvennaráðs hjá knattspyrnudeild Grindavíkur og Jón Ólafur Daníelsson, nýr þjálfari Grindavíkur hjá meistaraflokki kvenna.