Grindavík og Þróttur áttust við á Valbjarnarvelli í gær í botnslagi Pepsi deild kvenna. Grindavík átti enn eftir að innbyrða stig í sumar fyrir leikinn en Þróttur var búið að ná sér í tvö stig. Á fyrstu mínútunum voru heimastúlkur betri en Grindavík færði sig upp á skaftið og komst yfir á 33.mínútu með marki frá Shaneku. Þróttarar jöfnuðu …
Fyrirmyndarleikmaðurinn – Herferð gegn munntóbaksnotkun
Fyrirmyndarleikmaðurinn er átaksverkefni gegn munntóbaksnotkun knattspyrnumanna, á vegum Embætti Landlæknis, KSÍ, UMFÍ og ÁTVR. Einnig er herferðinni beint gegn notkun tóbaks á íþróttasvæðum. Forustumenn íþróttafélaganna eru hvattir til að fylgja eftir ályktun ÍSÍ um að útrýma allri notkun tóbaks úr öllu íþróttastarfi. Átakið mun standa frá júní til loka september, eða yfir keppnistímabil knattspyrnumanna. Ástæða þess að átakinu er beint …
100 ára saga Íslandsmótsins
Knattspyrnuunnendum verður í júní boðið upp á 10% afslátt af bókinni: 100 ára saga Íslandsmótsins í knattspyrnu, fyrra bindi. Hér er um að ræða glæsilega bók upp á 384 blaðsíður, sem segir sögu knattspyrnunnar á Íslandi í máli og myndum. Í bókinni er sagt frá upphafi knattspyrnunnar á Íslandi frá 1870 fram til að fyrsta Íslandsmótið fór fram 1912 og …
Útskrifuðust með hæstu þjálfaragráðu
Ólafur Örn Bjarnason þjálfari karlaliðs Grindavíkur, Jón Þór Brandsson þjálfari kvennaliðs Grindavíkur og Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur voru á meðal 35 þjálfara sem voru útskrifaðir með KSÍ A þjálfaragráðu á dögunum. Geir Þorsteinsson formaður KSÍ afhendi þjálfurunum skírteinin sín við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum KSÍ fyrir landsleik Íslands og Danmerkur. KSÍ A gráðan samsvarar UEFA A þjálfararéttindum, er …
Leynivinur býður á leik Grindavíkur og Breiðabliks
Kvennalið Grindavíkur mætir Breiðablik í Pepsideild kvenna á Grindavíkurvelli kl. 19:15 í kvöld. Ókeypis aðgangseyrir er á völlinn þar sem leynivinur kvennaboltans býður öllum á völlinn. Stelpurnar eru án stiga eftir þrjá leiki en ætla að bæta fyrir það í kvöld. Auglýsingu frá stelpunum fyrir leikinn í kvöld má sjá hér.
Alexander á forsíðu youtube
Myndband af vítaspyrnunni frægu hjá Alexander Magnússyni hefur farið eins og eldur um sinu á netinu. Markið sem hann skoraði gegn Þór 30.maí er til að mynda á forsíðu youtube þar sem yfir 460.000 manns hafa skoðað það. Einnig hefur myndbandið farið inn fjölda síðna um allan heim þar sem menn bera saman þetta víti við það sem U-19 ára …
Fjórir í æfingahóp körfuboltalandsliðsins
Peter Öqvist og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið sinn fyrsta æfingahóp fyrir Norðurlandamótið í körfubolta sem fram fer í Sundsvall í sumar. Í hópnum er 22 leikmenn og eru fjórir frá Grindavík: Páll Axel Vilbergsson, Ólafur Ólafsson og nýju mennirnir Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Jóhann Árni Ólafsson. Fyrstu æfingarnar fara fram um næstu helgi en hópurinn leggur af stað til …
Stjarnan 1 – Grindavík 2
Ekki tókst Grindavík að ná sér í stig í 7.umferð Pepsi deild karla í kvöld þegar þeir mættu Stjörnunni í Garðabæ. Grindavík stillti upp nær óbreyttu liði og sigraði Þór á dögunum. Scotty kom inn fyrir Yacine. Liðið var því þannig skipað: Óskar. Orri, Ólafur, Ray og Alexander í vörninni. Á miðjunni Paul, Scotty, Jóhann og Jamie. Frammi Pospisil og …
Knattspyrnuskóli Grindavíkur og Lýsis
Knattspyrnuskóli UMFG verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur. Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða tvö þriggja vikna námskeið í júní og júlí og eitt tveggja vikna námskeið í ágúst. Á námskeiðinu verður iðkendum skippt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi. …
Alexander framlengir til 2014
Bakvörðurinn Alexander Magnússon hefur framlengt samning sinn við Grindavík um tvö ár en hann skrifaði undir samning sem gildir út leiktíðina 2014. Alexander hefur leikið 22 leiki með Grindavík í Pepsideild á undanförnum tveimur árum og skorað eitt frægt vítaspyrnumark gegn Þór í síðustu umferð. Hann lék áður með Njarðvík. Alexander er 22ja ára og hefur verið einn allra besti hægri …