Fyrirmyndarleikmaðurinn – Herferð gegn munntóbaksnotkun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Fyrirmyndarleikmaðurinn er átaksverkefni gegn munntóbaksnotkun knattspyrnumanna, á vegum Embætti Landlæknis, KSÍ, UMFÍ og ÁTVR.

Einnig er herferðinni beint gegn notkun tóbaks á íþróttasvæðum. Forustumenn íþróttafélaganna eru hvattir til að fylgja eftir ályktun ÍSÍ um að útrýma allri notkun tóbaks úr öllu íþróttastarfi. Átakið mun standa frá júní til loka september, eða yfir keppnistímabil knattspyrnumanna. Ástæða þess að átakinu er beint að knattspyrnumönnum er að þar hefur munntóbaksnotkun breiðst afar hratt út á síðustu misserum. Samkvæmt könnun meðal knattspyrnumanna, kemur fram að allt að 30% leikmanna hafi notað munntóbak.

Vitað er að helsta ástæða þess að ungt fólk byrjar munntóbaksnotkun er hópþrýstingur eða fyrir tilstuðlan fyrirmynda. Átakið fer fram með þeim hætti að valinn verður einn leikmaður frá hverju liði í efstu deild og fær hann titilinn fyrirmyndarleikmaður. Sá leikmaður er ekki að neyta tóbaks. Hlutverk leikmannsins er að vera fyrirmynd yngri iðkenda auk þess að prýða veggspjöld í auglýsingaherferð átaksins.
Hvert einstakt lið í efstu deild fær heimsókn á heimaleik, þar sem ungir krakkar í búningum félagsins afhenda fyrirmyndarleikmanninum veggspjald sem hann áritar og staðfestir með undirskrift sinni að hann sinni fyrirmyndarhlutverki sínu af kostgæfni. Einnig fær formaður viðkomandi félags afhenta áskorun um að móta stefnu um notkun tóbaks á félagssvæðinu og sjá til þess að henni verði framfylgt.
Átakið verður kynnt rækilega með auglýsingum og umfjöllun fjölmiðla. Markmið átaksins er að koma þeim skilaboðum áleiðs að íþróttir og munntóbak eiga enga samleið. Og þó að átakið beinist sérstaklega að knattspyrnumönnum, þá er það aðeins upphafspunkturinn og markmiðið er að halda áfram á næstu árum að vekja íþróttamenn í öllum keppnisgreinum sem og ungt fólk til umhugsunar um þær slæmu hliðar sem neysla munntóbaks hefur í för með sér.

Forsvarsmaður átaksins er.     Faglegur umsagnaraðili.
Lárus Guðmundsson                Viðar Jensson
Gsm 897 5306                         gsm 8400 912
larus@marg.is                             vidar@lydheilsustod.is