Góður árangur hjá iðkendum taekwondo deildar UMFG á bikarmóti um helgina. Um helgina var haldið bikarmót TKÍ í Mosfellsbæ. Mótið var bæði á laugardag og sunnudag. Fjöldinn allur af keppendum kepptu þar frá flestum taekwondo félögum landsins. Taekwondo deild UMFG átti þar nokkra vaska keppendur sem stóðu sig frábærlega unnu til verðlauna. Innilega til hamingju krakkar. Í bardaga; Ylfa Rán Erlendsdóttir – gull …
Pétur tekur við Haukum
Haukar hafa ráðið Grindvíkinginn Pétur Rúðrik Guðmundsson sem nýjan þjálfara í Iceland Express deildinni í körfubolta. Hann segir því skilið við aðstoðarþjálfarastarfið hjá kvennaliði Keflavíkur og tekur nú við sínu fyrsta liði í úrvalsdeild karla sem aðalþjálfari. Pétur tekur við þjálfun liðsins af Pétri Ingvarssyni sem sagði skilið við félagið á dögunum. Pétur Rúðrik Guðmundsson hefur verið aðstoðarþjálfari í úrvalsdeild …
Ólafur Örn skrifaði undir tveggja ára samning
Ólafur Örn Bjarnason skrifaði í gær undir tveggja ára samning við knattspyrnulið Grindavíkur. Hann mun því einbeita sér að því að spila með liðinu en sem kunnugt er var hann þjálfari liðsins í ár en hann tók við Grindavík í 7. umferð á síðasta ári.
Dregið í Powerade bikarnum
Í gær var dregið í 32 liða úrslit í Powerade bikar karla. Það voru þeir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og Stefán Magnússon, markaðsstjóri Vífilfells, sem drógu að þessu sinni og upp úr hattinum komu tveir áhugaverðir leikir hér í Grindavík. Grindavík fær Hauka í heimsókn og ÍG fær Njarðvík. Leikið verður 9-12 desember næstkomandi.
Leikir hjá körfuknattleiksdeildinni
Þessi misseri taka krakkar í körfubolta þátt í hinum ýmsu mótum um helgar. KKÍ heldur utan um leikjadagskrána og er nú hægt að sjá dagskránna hjá yngri flokkum (og meistaraflokkum) með því að smella á Karfa í valmyndinni hér fyrir ofan. Um næstu helgi eru t.d. 10 flokkur stúlkna að keppa í Njarðvík, 9. flokkur drengja í Rimaskóla og …
Ólafur skrifar undir nýjan samning
Ólafur Örn Bjarnason hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeildina. Fyrsta verkefni Guðjóns Þórðarsonar var að tryggja áframhaldandi veru Ólafs hjá Grindavík og er ánægjulegt að það tókst. Ólafur er eins og allir vita einn af beti varnarmönnum landsins með 27 landsleiki að baki og þar af nokkra undir stjórn Guðjóns. Með Grindavík hefur Ólafur spilað 165 leiki …
Björn Lúkas Íslandsmeistari í Jiu Jitsu
Íslandsmeistaramót ungmenna í Brasilísku Jiu Jitsu var haldið síðasta laugardag en þetta er annað árið í röð sem ungmennamótið er haldið. Alls mættu yfir fimmtíu keppendur til leiks úr Reykjavík, Hafnarfirði og Reykjanesbæ og fjöldi fallegra glíma sást á mótinu. Ekki er keppt í þessari íþrótt í Grindavík en Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson æfir og keppir með Sleipni í Reykjanesbæ. …
Grindavík skellti KFÍ
Grindavík sigraði KFÍ öðru sinni í riðlakeppni Lengjubikars karla í körfbolta með 16 stiga mun, 103-87. Grindavík gerði út um leikinn í þriðja leikhluta með því að skora 28 stig gegn 10 stigum Vestfirðingar sem eru efstir í 1. deild en Grindavík er sem kunnugt er efst í úrvalsdeild. Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Giordon Watson skoruðu 19 stig hvor fyrir …
Þrír sigrar hjá körlunum um helgina
Nóg var um að vera hjá karlaliðum Grindavíkur í körfubolta um helgina. Á föstudeginum tóku Grindavík á móti Haukum í Iceland Express deildinni. Í fyrsta leikhluta var jafn á liðunum en þegar annar leikhluti var hálfnaður tóku okkar menn öll völd á leiknum og tryggðu sér öruggan 98-74 sigur. Grindavík er því eitt á toppi deildarinnar með sigur í fyrstu …
Grindavík og ÍG á sigurbraut
Grindavík hélt áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild karla í körfubolta eftir sigur á Haukum og er liðið enn með fullt hús stiga. Þá gerði Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari Grindavíkurliðsins, sér lítið fyrir og skoraði 35 stig fyrir ÍG sem lagði Breiðablik í hörku leik í 1. deildinni. Grindavík átti ekki í nokkrum vandræðum með þjálfaralausa Hauka 98-74. Staðan í hálfleik …









