Björn Lúkas Íslandsmeistari í Jiu Jitsu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Íslandsmeistaramót ungmenna í Brasilísku Jiu Jitsu var haldið síðasta laugardag en þetta er annað árið í röð sem ungmennamótið er haldið. Alls mættu yfir fimmtíu keppendur til leiks úr Reykjavík, Hafnarfirði og Reykjanesbæ og fjöldi fallegra glíma sást á mótinu. Ekki er keppt í þessari íþrótt í Grindavík en Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson æfir og keppir með Sleipni í Reykjanesbæ. Björk Lúkas gerði sér lítið fyrir og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Jiu Jitsu í flokki 14-17 ára í flokki -88 kg.

Vöxtur íþróttarinnar er mikill og ljóst að framtíð íþróttarinnar er björt enda barna- og unglingastarf í BJJ rétt að hefjast hjá félögunum, með þessum líka frábæra árangri. Verðlaunahafa einstakra flokka Íslandsmótsins má sjá hér að neðan en í raun voru allir sigurvegarar á mótinu, keppendur, íþróttin sjálf og félögin sem að starfinu standa.