Tækniæfingar í Hópinu

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur mun standa fyrir tækniæfingum fyrir hressa og káta krakka á öllum aldri á mánudögum kl.14.00-15.00 í Hópinu Umsjón: Yfirþjálfari yngriflokka ásamt góðum gestum   Auk þess eru tækniæfingar fyrir 4.fl-3.fl drengja og stúlkna á miðvikudögum kl.06.10 – 07.10.Umsjón: Yfirþjálfari yngriflokka ásamt góðum gestum

Nýjung – Tækniæfingar í fótboltanum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Knattspyrnudeild UMFG býður upp á eftirfarandi nýjungar: Tækniæfingar fyrir hressa og káta fótboltakrakka á öllum aldri á mánudögum kl. 14:00-15:00 í Hópinu. Umsjón: Yfirþjálfari yngri flokka ásamt góðum gestum.   Tækniæfingar fyrir 3. og 4. flokk drengja og stúlkna á miðvikudögum kl. 06:10 – 07:10. Umsjón:  Yfirþjálfari yngriflokka ásamt góðum gestum.  

Aðalfundur knattspyrnudeildar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG fór fram í síðustu viku. Að sögn heimasíðu UMFG var ágætlega mætt og fór fundurinn fram með hefðbundnu sniði. Jónas Þórhallsson, formaður stjórnar, las upp skýrslu stjórnar. Grétar Schmidt, formaður unglingaráðs, greindi frá starfi yngri flokka og Þórhallur Benónýsson gjaldkeri fór yfir fjármálin. Helstu niðurstöður úr ársreikning eru m.a. að tap á síðasta ári var 3,9 milljónir …

Aðalfundur fótboltans

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Aðalfundur knattspyrnudeild Grindavíkur fór fram í síðustu viku. Ágætlega var mætt og fór fundurinn fram með hefðbundnu sniði.  Jónas Þórhallsson, formaður stjórnar, las upp skýrslu stjórnar. Grétar Schmidt, formaður unglingaráðs, greindi frá starfi yngri flokka og Þórhallur Benónýsson, gjaldkeri, fór yfir fjármálin. Helstu niðurstöður úr ársreikning er m.a. að tap á síðasta ári var 3.9 milljónir og engin skuld til …

Grátlegt tap í Laugardalshöll

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar þurftu að sætta sig við silfrið í þriðja sinn á fjórum árum í bikarúrslitum karla í körfubolta. Grindavík steinlá fyrir Stjörnunni 79-91 í Laugardalshöll og var sigur Garðbæinga fyllilega verðskuldaður. Grindvíkingar náðu sér einfaldlega aldrei á strik. Lykilmenn voru langt frá sínu besta, hittnin léleg og viljinn meiri hjá Garðbæingum. Góður stuðningur fjölmargra Grindvíkinga á pöllunum hafði lítið að …

Töpuðum fyrir betra liði

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Þjálfari Grindvíkinga, Sverrir Þór Sverrisson, var auðmjúkur eftir bikarúrslitaleikinn í Laugardalshöll enda ekki annað hægt eftir að hafa tapað fyrir betra liði.  ,,Við vorum slakir. Auðvitað komu menn til leiks og ætluðu sér að spila sinn besta leik. En við lentum í hælunum í vörninni og hittum afleitlega. Stjarnan hitti á frábæran leik og við töpuðum fyrir betra liði í …

Grindavík gerði jafntefli við ÍBV

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík gerði jafntefli við ÍBV í 1. umferð deildabikarsins í knattspyrnu 3-3 í Reykjaneshöll. Hinn efnilegi Daníel Leó Grétarsson jafnaði metin með góðu skoti fyrir Grindavík með síðustu spyrnu leiksins. Magnús Björgvinsson kom Grindavík yfir þegar hann stakk sér einu sinni sem oftar inn fyrir vörn Eyjamanna en skömmu áður hafði Jóhann Helgason brennt af vítaspyrnu fyrir Grindavík. Eyjamenn svöruðu …

Stóri bikardagurinn er runninn upp!

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Nú er stóri dagurinn runninn upp. Grindavík og Stjarnan mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar í körfubolta karla í Laugardalshöll kl. 16:00. Stjörnumenn eru komnir aftur í Höllina fjórum árum eftir að þeir unnu eftirminnilegan sigur á stórskotaliði KR. Að þessu sinni eru mótherjarnir Grindavík sem er að mæta í Höllina í þriðja sinn á fjórum árum en hefur þurft að sætta …

Forsölumiðarnir uppseldir – Dagskrá bikardagsins

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Dagskrá bikarúrslitaleiksins í dag er eftirfarandi: Kl. 12 opnar Þróttaraheimilið. Kl. 12:30 fer rúta frá íþróttahúsinu í Grindavík (500 kr.). Kl. 15.15 er rölt yfir í Laugardalshöll og kl. 16:00 hefur sjálfur úrslitaleikurinn. Kl. 20:00 Þorrablót (sigurhátíð…) í íþróttahúsinu í Grindavík. Allir 250 miðarnir í Grindavík seldust upp í forsölu en hægt er að kaupa miða á 1.500 kr. á …

Fyrirliðarnir klárir!

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Örfáir miðar eru eftir í forsölunni fyrir bikarúrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar sem fram fer í Laugardalshöll á morgun kl. 16:00. Fyrirliðar karla og kvennaliðanna hittust á blaðamannafundi í gær en þar var Þorleifur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur fulltrúi liðsins.  Dómararnir fyrir leikinn eru klárir en það eru Björgvin Rúnarsson og Jón Guðmundsson sem halda munu utan um stjórnartaumana.  Björgvin dæmir sinn …