,,Þetta gekk vel hjá öllu liðinu og þetta var góður sigur,“ segir Jósef Kristinn Jósefsson leikmaður Grindavíkur en hann er leikmaður 6. umferðar í 1. deild karla hjá fotbolti.net. Jósef var mjög öflugur í liði Grindavíkur í 3-0 útisigri á Þrótti en hann skoraði meðal annars frábært mark með hægri fæti. ,,Ég hef aldrei hitt boltann svona vel með hægri. …
Nýr samningur Grindavíkurbæjar og UMFG
Grindavíkurbær og UMFG hafa skrifað undir nýja samning um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Gunnlaugur Hreinsson formaður UMFG skrifuðu undir samninginn sem gildir til þriggja ára. Bæjarráð samþykkti að gerður verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð kr. 2.500.000 sem kemur til lækkunar á handbæru fé. Þá hefur bæjarráð falið frístunda- og menningarnefnd að …
Frí í knattspyrnuskólanum í dag
Engir skólar eru starfandi á þjóðhátíðardaginn og á það sama við um knattspyrnuskólann. Tímar byrjar aftur í fyrramálið og hægt er einnig hægt að skrá sig í skólann þá.
Jafntefli gegn Hetti
Grindavík og Höttur skildu jöfn 2-2 á Grindavíkurvelli í gærkvöldi í 1. deild kvenna. Grindavík náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik og Höttur skoraði tvö ansi ódýr mörk. En í seinni hálfleik stjórnaði Grindavík leiknum og skapaði sér fullt af fínum færum. Margrét Albertsdóttir minnkaði muninn á 52. mínútu eftir frábæra sókn og Ágústa Jóna Heiðdal fyrirliði jafnaði …
Grindavík skellti Þrótti örugglega
Grindavík skellti Þrótti örugglega 3-0 í 1. deild karla og hefur nú þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Grindavík gerði í raun út um leikinn með tveimur mörkum með mínútu millibili um miðjan fyrri hálfleikinn en þar voru að verki Jósef Kristinn Jósefsson og Juraj Grizelj. Grindavík hafði talsverða yfirburði í leiknum og það var Guðfinnur Þórir Ómarsson sem skoraði …
Grindavík mætir Hetti
Grindavíkurstelpur mæta Hetti í 1. deild kvenna á Grindavíkurvelli í kvöld kl. 20:00. Þetta er toppslagur í deildinni en liðin hafa unnið báða leiki sína í deildinni til þessa. Grindavík hefur unnið KR og Fjarðabyggð en Höttur skellti Fjarðabyggð og Sindra 3-0 í báðum leikjunum. Sem fyrr auglýsa Grindavíkurstelpurnar heimaleikina sína á skemmtilegan hátt og má sjá nýjustu auglýsinguna hér …
Enn á sigurbraut
Grindavík heldur áfram sigurgöngu sinni og nú var það Þróttur sem okkar menn lögðu 3-0 Það var fyrst og fremst góður fyrri hálfleikur sem lagði grunninn að sigrinum. Jósef og Juraj skoruðu tvö mörk með mínútu millibili, bæði stórglæsileg. Guðfinnur Ómarsson, sem spilaði með Þrótti á síðasta tímabili, kom inn á 76.mínútu og skoraði síðasta mark leiksins á 88. mínútu. …
Grindavík – Höttur
Stelpurnar taka á móti Hetti í kvöld í 1.deild kvenna. Bæði lið hafa unnið fyrstu tvo leiki sína og því von á fjörugum leik í kvöld. Höttur sigraði Fjarðabyggð og Sindra í fyrstu umferðunum og Grindavík hefur nú þegar lagt KR og Fjarðabyggð Leikurinn hefst klukkan 20:00 á Grindavíkurvelli í kvöld.
Grindavík sækir Þrótt heim
Grindavík sækir Þrótt heim í 1. deild karla í kvöld kl. 19:15. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram á Valbjarnarvelli í Laugardal. Grindavík er í efsta sæti deildarinnar með 12 stig en Þróttur í því næst neðsta með þrjú stig. Fremstur í flokki Þróttara er framherjinn Sveibjörn Jónasson sem lék með Grindavík á sínum tíma.
Nýr leikmaður:Pálína María Gunnlaugsdóttir
Kvennalið körfuknattleiksdeildar UMFG ætlar sér stóra hluti á næstu tímabilum og hafa tryggt sér þjónustu besta leikmann Íslandsmótsins, Pálinu Maríu Gunnlaugsdóttir Fréttatilkynning körfuknattleiksdeildarinnar: Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur/kvennaráð er stolt að tilkynna hér með að eftirsóttasti leikmaður á markaðnum í íslenskum kvennakörfuknattleik, Pálína Maíra Gunnlaugsdóttir hefur samið til tveggja ára við Grindavík. Sjórn og kvennaráð binda miklar vonir við Pálínu ekki bara …









