Knattspyrnudeild Grindavíkur og Sparisjóður Keflavíkur hafa framlengt samning sinn til næstu tveggja ára en skrifað var undir samninginn í Gula húsinu í dag. Sparisjóður Keflavíkur verður einn af stærstu samstarfsaðilum knattspyrnudeildarinnar líkt og mörg undanfarin ár en Sparisjóðurinn hefur lagt áherslu á að vera í góðum tengslum við knattspyrnuhreyfinguna, m.a. með nýjum samningum við KSÍ. Sparisjóður Keflavíkur er með …
Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG
Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG fyrir árið 2010 verður haldinn í Gula húsinu fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Allir velkomnir.
Gilles Ondo til Noregs
Gilles Mbang Ondo hefur gengið til liðs við norska liðið Stabæk Ondo hefur verið með lausan samning í vetur og hefur verið á reynslu hjá liði í Ástralíu og svo í Noregi. Gilles hefur spilað undanfarin tvö ár með Grindavík og var m.a. markahæsti leikmaður Íslandsmótsins í sumar þannig að vandasamt gæti verið að fylla hans skarð en leitin stendur …
HK – Grindavík á morgun
Meistaraflokur karla í knattspyrnu spilar sinn fyrsta leik á nýju ári á morgun. Þá hefst fotbolti.net mótið þar sem flest af bestu liðum landsins taka þátt. Fyrsti leikurinn er gegn HK í Kórnum á morgun klukkan 10:00 Mótið var sett upp þar á sama tíma og Reykjavíkurliðin keppast innbyrðis í Reykjavíkurmótinu en í Fótbolti.net mótinu taka þátt auk Grindavíkur: Breiðablik, …
Leikir á næstunni
Á næstu dögum og vikum tekur meistaraflokkur kvenna þátt í Faxaflóamótinu og meistaraflokkur karla í Fótbolti.net mótinu. Stelpurnar leika við Aftureldingu í Reykjaneshöllinni á morgun klukkan 18:00 og gegn ÍBV 22 janúar, einnig í Reykjaneshöllini. Karlaliðið tekur hinsvegar þátt í Fótbolti.net sem er mót margra af bestu liða landsins og fer fram á sama tíma og Reykjavíkurliðin keppast innbyrðis á …
Unglingadómaranámskeið 2011
Unglingadómaranámskeið á vegum KSÍ verður haldið í Gulahúsinu Grindavík fimmtudaginn 13 jan kl. 17:30 Um að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál. Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í …
Hópið opið
Fjölnota íþróttahúsið Hópið verður opið á morgun þriðjudag frá kl. 13-16 fyrir börn og foreldra sem vilja koma og leika sér saman í fótbolta. Þetta er tilvalin samverustund á milli jóla og nýárs fyrir þá sem hafa tíma til þess að fara með krökkunum. Þeir sem vilja fá sér góða göngu geta einnig komist í Hópið …
Stjórn KSÍ fundaði í Grindavík
Stjórn KSÍ hélt stjórnarfund í Gula húsinu í Grindavík í gær. Stjórnin fer reglulega með fundina út á landsbyggðina og skellti sér til Grindavíkur að þessu sinni. Að loknum fundinum fór stjórn knattspyrnudeildar Grindavíkur með stjórn KSÍ í skoðunarferð um knattspyrnuhúsið Hópið og síðan bauð Stakkavík í skoðunarferð og í súpuveislu. Að endingu var komið við á kaffihúsinu Bryggjunni …
Vísir sigraði í firmakeppninni
Vísir hf. bar sigur úr bítum í firmakeppni knattspyrnudeildar Grindavíkur og Lýsis í gærkvöldi í karlaflokki, annað árið í röð. Vísir hf. hafði talsverða yfirburði á mótinu en liðið vann Njallana frá Sandgerði í úrslitaleik 6-2. Goran Lukic skoraði 4 mörk í leiknum og var valinn maður mótsins. Jaxlarnir, lið Guðmundar Pálssonar tannlæknis varð í 3. sæti eftir sigur …
Grindavík er einstök
Góður forsvarsmaður fyrirtækis í Grindavík sagði á sínum tíma: “Grindavík er einstök! Hér er öflugt íþrótta- og atvinnulíf, hvorugt má af hinu sjá. Það skilja menn hér bæ.” Viðburðarríku knattspyrnurári er að ljúka. Grindavík verður áfram á meðal þeirra bestu í Pepsideildum karla og kvenna og yngri flokkarnir stóðu sig með sóma. Starfið var með nokkuð hefðbundnu sniði en engu …