Jósef floginn til Búlgaríu

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Jósef Kristinn Jósefsson, leikmaður Grindvíkur, fór í morgun til Búlgaríu til þess að semja við liðið PSFC Chernomorets Burgas en hann var á reynslu hjá liðinu í síðasta mánuði. 

Grindavík og búlgarska félagið eru langt komin með að semja um kaupverðið. Nánar verður greint frá málinu síðar hér á heimasíðunni.