Fjórir landsliðsmenn litu við á æfingum hjá yngstu flokkunum í Grindavík í knattspyrnuhöllinni Hópinu í gær. Þeir voru að sjálfsögðu leystir út með gjöfum eins og Grindvíkingum einum er lagið! Fremur í flokki fjórmenninganna var Grindvíkingurinn Alfreð Finnbogason. Íslenska karlalandsliðið mætir Slóveníu í undankeppni HM á Laugardalsvelli á föstudaginn. Fjórmenningarnir skutust í frítíma sínum til Grindavíkur og tóku þátt í …
Nágrannaslagur í kvöld
Grindavík og Keflavík mætast á Grindavíkurvelli í 1. deild kvenna í kvöld kl. 20:00. Stelpurnar hafa gert skemmtilega auglýsingu fyrir leikinn þar sem Kristín Karlsdóttir er í aðalhlutverki. Ókeypis aðgangur er á völlinn. Liðin mættust fyrir skömmu í bikarnum þar sem Grindavík hafði betur í hörku leik.
Grindavík ekki í vandræðum með Tindastól
Grindavík skellti Tindastóli 4-1 í 1. deild karla og heldur því toppsæti sínu í deildinni. Jóhann Helgason fyrirliði var aftur kominn í lið Grindavíkur eftir að hafa misst úr tvo síðustu leiki liðsins vegna meiðsla og þá var Alexander Magnússon einnig í byrjunarliðinu en hann er að komast í gang eftir erfið meiðsli. Nýjasti liðsmaðurinn Denis Sytnik var á varamannabekknum. …
Rúrik vann punktakeppnina á Opna Sjóara síkátamótinu í golfi
Fín þátttaka var í Sjóarinn Síkáti Open mótinu sem fram fór í dag á Húsatóftavelli í Grindavík. Tæplega 100 kylfinga tóku þátt í mótinu. Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur án forgjafar: 1. sæti – Hrafn Guðlaugsson, GSE 67 högg Punktakeppni:1. sæti – Rúrik Hreinsson, GG – 36 punktar2. sæti – Sigurður Hafsteinn Guðfinsson, GG – 36 punktar3. sæti – Jóhann Freyr …
Alfreð Finnbogason í heimsókn ásamt fleiri landsliðsmönnum í knattspyrnu
Alfreð Finnbogason kemur í heimsókn á Grindavíkurvöll ásamt fleiri landsliðsmönnum í knattspyrnu þriðjudaginn 4. júní kl.15:15 þar sem þeir verða munu stjórna æfingu! Við hvetjum allar stelpur og stráka í Grindavík til að mæta og taka þátt í æfingunni. Áfram Grindavík!
Knattspyrnuskóli UMFG og Lýsis – Æfingatímar í sumar
Knattspyrnuskóli UMFG verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur. Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða eitt fjögurra vikna námskeið í júní og júlí og eitt þriggja vikna námskeið í ágúst. Á námskeiðunum verður iðkendum skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt …
Grindavík stóð vel í KR
Grindavík tapaði fyrir KR í 32ja liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Grindvíkingar stóðu sig mjög vel en KR-ingar eru með reynslumikið lið sem kláraði leikinn á lokasprettinum. Grindavík hafði fengið bestu færi leiksins áður en KR komst yfir á 30. mínútu. En Jósef Kristinn Jósefsson jafnaði metin fyrir Grindavík á 63. mínútu eftir að hann fylgdi vel eftir skoti …
Grindavík sækir KR heim í bikarnum
Grindavík sækir KR heim í 32ja liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu á KR-völl í kvöld kl. 19:15. Búast má við erfiðum leik fyrir Grindavík enda KR á toppnum í úrvalsdeildinni en eins og allir vita geta ævintýrin gerst í bikarnum. KR hefur gefið út leikskrá fyrir leikinn og má sjá hana hér. Þar eru ýmsar áhugaverðar staðreyndir um bikarleiki liðanna …
Grindavík úr leik í bikarnum eftir hörku leik
Grindavíkurstelpur töpuðu fyrir Fylki 3-5 í 32ja liða úrslitum bikarkeppni KSÍ á Grindavíkurvelli í gærkvöldi eftir framlengdan leik. Þrátt fyrir hetjulega baráttu reyndust gestirnir sterkari í framlengingu en leikurinn var frábær skemmtun. Ágústa Jóna Heiðdal fyrirliði kom Grindavík yfir á 31. mínútu þegar hún stakk sér í gegnum vörn gestanna. Margrét Albertsdóttir kom Grindavík 2-0 á 43. mínútu þegar hún …
Stelpurnar mæta Fylki í bikarnum
Grindavík mætir Fylki á Grindavíkurvelli á morgun, þriðjudag, kl. 20:00, í 32ja liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Grindavíkurstelpurnar hafa útbúið skemmtileg auglýsingaplakat í tilefni leiksins þar sem Ágústa Jóna Heiðdal fyrirliði er í aðalhlutverki. Ókeypis aðgangur er á völlinn og eru Grindvíkingar hvattir til þess að mæta á völlinn og hvetja stelpurnar til dáða. Fyrirmyndina að plakatinu má sjá …