Bæði karla- og kvennalið Grindavíkur spiluðu leiki í Dominosdeildinni síðustu tvo daga. KR tók á móti Grindavík í Domionsdeild kvenna og strákarnir fengu Skallagrím í heimsókn. Leikur KR og Grindavíkur var jafn fyrstu þrjá leikhlutana en heimastúlkur tóku yfirhöndina í fjórða leikhluta og unnu með 12 stigum, 59-47. Petrúnella Skúladóttir var stigahæst með 19 stig, Helga Rut Hallgrímsdóttir var …
Gáfu eftir á lokasprettinum
Grindavík tapaði fyrir KR 59-47 í úrvalsdeild kvenna í körfubolta þegar liðin mætust í íþróttahúsi KR. Nýr bandarískur leikmaður KR reyndist Grindavíkurliðinu erfiður. Grindavík byrjaði betur og hafði fimm stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann. En í öðrum leikhluta hrökk KR í gang og hafði yfir í hálfleik 34-26. Grindavík tókst að minnka muninn í þriðja leikhluta en eins og svo …
Páll Axel í heimsókn í Röstina
Grindavík fær ekki langan tíma til að sleikja sárin eftir bikarúrslitaleikinn um helgina. Grindavík tekur á móti Skallagrími í Röstinni í kvöld kl. 19:15. Fremstur í flokki gestanna er að sjálfsögðu Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson sem var fyrirliði Grindavík sl. vor þegar félagið hampaði Íslandsmeistaratitli. Páll Axel hefur spilað vel með Skallagrími í vetur. Verður gaman að sjá hann á …
KR-Grindavík
Grindavík spilar gegn KR í kvöld Dominosdeild kvenna. Leikurinn fer fram í DHL höllinni klukkan 19:15 KR er í 3. sæti með 26 stig en Grindavík í því sjöunda. Má búst við ágætum leik þar sem okkar stelpur hafa verið að spila vel upp á síðkastið, töpuðu reyndar í tvíframlengdum leik í síðustu umferð en unnu leikinn þar á undan. …
Tækniæfingar í Hópinu
Knattspyrnudeild Grindavíkur mun standa fyrir tækniæfingum fyrir hressa og káta krakka á öllum aldri á mánudögum kl.14.00-15.00 í Hópinu Umsjón: Yfirþjálfari yngriflokka ásamt góðum gestum Auk þess eru tækniæfingar fyrir 4.fl-3.fl drengja og stúlkna á miðvikudögum kl.06.10 – 07.10.Umsjón: Yfirþjálfari yngriflokka ásamt góðum gestum
Nýjung – Tækniæfingar í fótboltanum
Knattspyrnudeild UMFG býður upp á eftirfarandi nýjungar: Tækniæfingar fyrir hressa og káta fótboltakrakka á öllum aldri á mánudögum kl. 14:00-15:00 í Hópinu. Umsjón: Yfirþjálfari yngri flokka ásamt góðum gestum. Tækniæfingar fyrir 3. og 4. flokk drengja og stúlkna á miðvikudögum kl. 06:10 – 07:10. Umsjón: Yfirþjálfari yngriflokka ásamt góðum gestum.
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG fór fram í síðustu viku. Að sögn heimasíðu UMFG var ágætlega mætt og fór fundurinn fram með hefðbundnu sniði. Jónas Þórhallsson, formaður stjórnar, las upp skýrslu stjórnar. Grétar Schmidt, formaður unglingaráðs, greindi frá starfi yngri flokka og Þórhallur Benónýsson gjaldkeri fór yfir fjármálin. Helstu niðurstöður úr ársreikning eru m.a. að tap á síðasta ári var 3,9 milljónir …
Aðalfundur fótboltans
Aðalfundur knattspyrnudeild Grindavíkur fór fram í síðustu viku. Ágætlega var mætt og fór fundurinn fram með hefðbundnu sniði. Jónas Þórhallsson, formaður stjórnar, las upp skýrslu stjórnar. Grétar Schmidt, formaður unglingaráðs, greindi frá starfi yngri flokka og Þórhallur Benónýsson, gjaldkeri, fór yfir fjármálin. Helstu niðurstöður úr ársreikning er m.a. að tap á síðasta ári var 3.9 milljónir og engin skuld til …
Grátlegt tap í Laugardalshöll
Grindvíkingar þurftu að sætta sig við silfrið í þriðja sinn á fjórum árum í bikarúrslitum karla í körfubolta. Grindavík steinlá fyrir Stjörnunni 79-91 í Laugardalshöll og var sigur Garðbæinga fyllilega verðskuldaður. Grindvíkingar náðu sér einfaldlega aldrei á strik. Lykilmenn voru langt frá sínu besta, hittnin léleg og viljinn meiri hjá Garðbæingum. Góður stuðningur fjölmargra Grindvíkinga á pöllunum hafði lítið að …
Töpuðum fyrir betra liði
Þjálfari Grindvíkinga, Sverrir Þór Sverrisson, var auðmjúkur eftir bikarúrslitaleikinn í Laugardalshöll enda ekki annað hægt eftir að hafa tapað fyrir betra liði. ,,Við vorum slakir. Auðvitað komu menn til leiks og ætluðu sér að spila sinn besta leik. En við lentum í hælunum í vörninni og hittum afleitlega. Stjarnan hitti á frábæran leik og við töpuðum fyrir betra liði í …