Sigur og tap hjá mfl.

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Bæði karla- og kvennalið Grindavíkur spiluðu leiki í Dominosdeildinni síðustu tvo daga. KR tók á móti Grindavík í Domionsdeild kvenna og strákarnir fengu Skallagrím í heimsókn.

Leikur KR og Grindavíkur var jafn fyrstu þrjá leikhlutana en heimastúlkur tóku yfirhöndina í fjórða leikhluta og unnu með 12 stigum, 59-47.  

Petrúnella Skúladóttir var stigahæst með 19 stig, Helga Rut Hallgrímsdóttir var með 9 stig og 11 fráköst.

Myndir úr leiknum má sjá að vef karfan.is

Leikur Grindavíkur og Skallagríms var hinsvegar ekki jafn spennandi.  Fyrsta korterið var frekar jafnt á liðunum en seinni hálfleikurinn var algjörlega eign okkar manna sem enduðu leikinn með yfirburðasigri 107-65.

Allir leikmenn Grindavíkur fengu nokkrar mínútur og allir komust þeir á stigatöfluna.

Næstu leikir eru:
Dominosdeild karla:Stjarnan-Grindavík á sunnudaginn klukkan 19:15
Dominosdeild kvenna:Keflavík-Grindavík 27.feb klukkan 19:15