Grindavík – KFÍ í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík tekur á móti KFÍ í kvöld klukkan 19:15 í Lengjubikar karla. Liðin eru í B-riðli og eru tvö efstu liðin í riðlinum.  Grindavík hefur unnið alla sína leiki og eru því tryggir áfram en KFÍ hefur bara spilað tvo, sigur í einum og tap gegn Grindavík í hinum.

Gott fólk óskast í unglingaráð

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Unglingaráð knattspyrnudeildar UMFG auglýsir eftir áhugasömu fólki til starfa til að stýra starfi yngri flokkanna í Grindavík og aðstoða við ýmis verkefni. Nánari upplýsingar veitir Gauja, netfang gauja@grindavik.is, eða í síma 893 4272.

Unglingaráð knattspyrnudeildarinnar

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Unglingaráð knattspyrnudeildarinnar auglýsir eftir áhugasömu fólki til starfa. Nánari upplýsingar veitir:Gauja netfang gauja@grindavik.iss.8934272 

Þriggja ára samningur við Guðjón

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Guðjón Þórðarson var í gærkvöldi ráðinn þjálfari Grindavíkurliðsins í knattspyrnu til næstu þriggja ára. Hann tekur við af Ólafi Erni Bjarnasyni sem hugsanlega mun spila áfram með liðinu. Milan Stefán Jankovic verður aðstoðarþjálfari Guðjóns. Mynd: Vikari.is

Grindavík áfram í Lengjubikarnum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurliðið mætti Haukum í Lengjubikar karla í körfubolta í gær. Okkar menn sigruðu 93-79 og eru þar með komnir áfram í keppninni þar sem þeir hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í B-riðli. Páll Axel Vilbergsson var enn og aftur stigahæstur með 24 stig og hitti m.a. úr 4 af 5 af þriggja stiga skotum. J’Nathan Bullock skoraði 20 stig eins …

Grindavík komið áfram í Lengjubikarnum

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík mætti Haukum í Lengjubikarnum í gær. Okkar menn sigruðu leikinn 93-79 og eru þar með komnir áfram í keppninni þar sem þeir hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í B-riðli. Páll Axel var enn og aftur stigahæstur með 24 stig og hitti m.a. úr 4 af 5 af þriggja stiga skotum. J’Nathan Bullock skoraði 20 stig eins og Ólafur …

Guðjón Þórðarson er nýr þjálfari Grindavíkur

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Knattspyrnudeild UMFG hefur ráðið Guðjón Þórðarson þjálfara meistaraflokks karla til næstu  þriggja ára. Guðjón þjálfaði BÍ/Bolungarvík á síðustu leiktíð en á að baki farsælan feril sem knattspyrnuþjálfari hér á landi, Englandi og Noregi.  

Búningamátun á þriðjudag

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Þriðjudaginn 8. nóvember fer fram mátun á körfuboltabúningum. Mátunin fer fram í húsnæði UMFG í útistofunni við Grunnskólann frá kl 17:30-18:30.  Búningurinn kostar 7.400 kr og þarf að greiðast við pöntun.

Haukar – Grindavík í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Meistaraflokkur karla gerir sér ferð í Hafnarfirðinn í kvöld þar sem þeir mæta Haukum í Lengjubikarnum. Lengjubikarinn er bikarkeppni þar sem liðin spila í riðlum.  Fyrsti leikur Grindavíkur var gegn Fjölni sem þeir unnu 82-78.  Haukar töpuðu hinsvegar fyrir KFÍ í fyrstu umferðinni 76-79 Leikurinn hefst klukkan 19:15 og þau sem ekki komast á völlinn er bent á að Haukar …

Vinnusigur gegn Val

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík sigraði Val 83-73 í Vodafone-höllinni í gær, en heimamenn höfðu yfirhöndina stóra hluta leiksins. Reynslan kom til bjargar í fjórða leikhlutanum og því stóðu gestirnir uppi sem sigurvegarar. „Þetta var heppnissigur hjá okkur í kvöld,“ sagði Páll Axel Vilbergsson, leikmaður Grindvíkinga, eftir sigurinn í gær. „Við vorum að elta nánast allan leikinn og þetta var bara skelfilegur leikur af …