Það var eflaust beigur í mörgum fyrir leik kvöldsins á móti Stjörnunni sem vermdi 2. sætið í Iceland Express deildinni, einungis 1 sigurleik frá okkur. Við töpuðum hinum stóra leik á móti KR á mánudagskvöldið og margir héldu kannski að sú vonbrigði myndu sitja í okkar mönnum. Aldeilis ekki!! Við hreinlega rúlluðum Stjörnumönnum upp og hefði ekki verið fyrir nettan …
Golfskálinn ekki í eigu GG?
Í skýrslu formanns á aðalfundi Golfklúbbs Grindavíkur fyrir skömmu kom fram að í haust bárust stjórn GG þær fréttir að núverandi golfskáli er ekki skráður í eigu golfklúbbsins en árið 2008 færði Fjársýsla ríkisins húsnæðið undir sína eign. Eins og flestir félagar vita þá hafði Golfklúbburinn fengið húsnæðið að gjöf frá ríkinu og byggði núverandi golfskála upp með sínu fjármagni …
Jón gerður að heiðursfélaga GG
Ekki alls fyrir löngu var haldið afmælishóf í framtíðar golfskála GG-manna. Þar voru m.a. félagar GG heiðraðir fyrir störf sín í þágu klúbbsins og golfíþróttarinnar. Meðal annars var Jón Guðmundsson gerður að heiðursfélaga en hann er sjá sjöundi í sögu GG sem fær slíka viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf og fórnfýsi í þágu klúbbsins.: Þeir sem fengu gullmerki klúbbsins voru: Aðalgeir Georg …
Alexander til reynslu hjá Sogndal
Alexander Magnússon bakvörður Grindvíkinga er þessa dagana á reynslu hjá Sogndal í Noregi. Alexander vakti athygli fyrir góða frammistöðu með Grindvíkingum á síðasta tímabili en hann var í lykilhlutverki hjá liðinu. Sogndal er einnig með Svía og Finna á reynslu en þeir munu líkt og Alexander leika með liðinu í æfingamóti um næstu helgi. ,,Magnusson er spennandi bakvörður sem er …
Dregið í 8-liða bikar kvenna
Í dag var dregið í 8-liða úrslit í bikarkeppni kvenna. Grindavík var í pottinum og fær drógst á móti Stjörnunni, leikurinn fer fram 21- 23 janúar. Bæði liðin eru í 1.deild þar sem þau verma toppsætin, Grindavík í því fyrsta. Liðin mættust fyrir mánuði í deildinni þar sem Grindavík fór með sigur af hólmi, 76-53. Aðrir leikir í bikarkeppni kvenna …
Taekwondo æfingar falla niður í dag.
Taekwondo æfingar falla niður í dag 10.janúar vegna veðurs. Sjáumst hress á fimmtudaginn Kveðja Þjálfarar
Vel heppnað pílumót
Opið pílukastmót, Grindavík Open 2012, var haldið um helgina í Salthúsinu á vegum Pílufélags Grindavíkur. Um 40 keppendur mættu til leiks og var hart barist en Þorgeir Guðmundsson bar sigur úr bítum í A úrslitum en Pétur Guðmundsson í B úrslitum. Riðlakeppnin gekk þannig fyrir sig að þeir sem lentu í fjórum efstu sætum í hverjum riðli fóru í 32 …
Jóhann farinn í KA
Jóhann Helgason sem hefur verið lykilmaður Grindavíkurliðsins í knattspyrnu undanfarin ár var um helgina lánaður í eitt ár til uppeldisfélags síns, KA. Hann fetar í fótspor Orra Freys Hjaltalíns sem yfirgaf Grindavík og fór í uppeldisfélag sitt Þór Á Akureyri fyrir skömmu. ,,Mér fannst vera kominn tími á að spila aftur með mínu uppeldisfélagi og það er minn vilji að …
Tilhlökkun að mæta KR í 16- liða úrslitum bikarsins
KR fær Grindavík í heimsókn í 16-liða úrslitum Powerade bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands í kvöld klukkan 19:15. Þetta er síðasti leikurinn á þessu stigi keppninnar en þetta eru liðin sem mættust í úrslitaleiknum í fyrra. Þá höfðu KR-ingar betur þegar þeir unnu í Laugardalshöllinni áður en þeir lyftu svo Íslandsmeistaratitlinum einnig í lok leiktíðar í fyrra. Grindvíkingar eiga því harma að …
Brotlending hjá Grindavík
Grindavík er úr leik í bikarkeppninni eftir 5 stiga tap gegn bikarmeisturum KR í íþróttahúsi KR í kvöld. Þar með tókst KR að stöðva sigurgöngu Grindavíkurliðsins sem verður nú að einbeita sér að fullum krafti að deildarkeppninni í staðinn þar sem liðið trónir á toppnum. Liðin mættist í úrslitaleik bikarkeppninnar í fyrra og þar hafði KR betur og tókst því …









