Í dag fór fram afmælismót JSÍ í judó 11-19 ára. Þar kepptu 3 Grindvíkingar, þeir Marcin Ostrowski, Guðjón Sveinsson og Sigurpáll Albertsson. Marcin Ostrowski fékk silfur í -55kg flokki U15 Guðjón Sveinsson fékk silfur í -66kg flokki í U20 Sigurpáll Albertsson fékk gull í -90kg flokki í U20 Marcin keppti í -55kg 13-14 ára og voru þeir 4 í …
Grindavík vann uppgjör toppliðanna
Grindavík skelli Stjörnunni 75-67 í uppgjöri toppliðanna í úrvalsdeild karla í körfubolta í Garðabæ og hefur nú fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Þetta var tíundi sigurleikur liðsins í síðustu ellefu leikjum og ánægjulegt að sjá að bikartapið á dögunum sat ekkert í okkar mönnum. Grindavík tók leikinn strax í sínar hendur og hafði 9 stiga forskot eftir fyrsta leikhluta. …
Dósasöfnun
Vegna vonsku veðurs um síðustu helgi var hinni árlegu dósasöfnun körfuboltans frestað. Hún verður hinsvegar núna á sunnudaginn. Þá munu leikmenn meistaraflokks karla og kvenna ganga í hús og safnadósum og flöskum. Ef fólk er ekki heima er ekki mikið mál að henda bóka/bókum útfyrir og við hirðum þá við komu. Þetta hefur verið stór liður í fjáröflun deildarinnar undanfarin ár. …
ÍG – ÍA í kvöld
ÍG tekur á móti ÍA í 1.deild karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram hér í Grindavík. Fyrir leikinn er ÍA í fimmta sæti en ÍG í því sjöunda með 8 stig eftir 10 leiki. Stigahæsti leikmaður skagamanna er Terrence Watson en Dagur Þórisson, fyrrum leikmaður Grindavíkur, er einnig ofarlega á lista.
Stjörnuleikurinn á morgun
Stjörnuleikur KKÍ fer fram í Grafarvogi á morgun, laugardaginn 14.janúar, og hefst veislan klukkan 14:00 Grindavík á fjölmarga þáttakendur í leiknum og viðburðum tengdum honum. Í stjörnuleiknum sjálfum eru þrír frá Grindvík í byrjunarliði landsbyggðarinnar en það eru Giordan Watson, Sigurður Gunnar Þorsteinsson og J‘Nathan Bullock en aðrir í byrjunarliðinu eru Magnús Þór Gunnarsson frá Keflavík og Jón Ólafur Jónsson úr Snæfelli. Þjálfari liðsins …
Fótbolti.net mótið að byrja
Á morgun mætast ÍBV og Grindavík í fotbolti.net mótinu sem fram fer næsta mánuðinn. Er þetta í annað sinn sem þetta mót fer fram en þarna mætast öll bestu lið landsins á meðan Reykjavíkurliðin spila í sínu Reykjavíkurmóti. Þar sem þetta er ekki KSÍ mót þá mega liðin tefla fram mönnum sem ekki eru á skrá hjá sér og geta …
Alexander fer ekki til Noregs
,,Ég er virkilega ósáttur með þessa ákvörðun, sérstaklega þar sem Jónas formaður sagði alltaf að hann kæmi ekki í veg fyrir að ég fari út í atvinnumennsku,“ sagði Alexander Magnússon bakvörður Grindavíkur við Fótbolta.net í gærkvöld en ekkert verður úr því að hann fari á reynslu hjá norska liðinu Sogndal því Grindavík hefur bannað honum að fara út. Alexander átti …
Grindavík dróst gegn Stjörnunni
Í gær var dregið í 8-liða úrslit í bikarkeppni kvenna í körfubolta. Grindavík var í pottinum og mætir Stjörnunni, leikurinn fer fram 21.- 23. janúar. Bæði liðin eru í 1. deild þar sem þau verma toppsætin, Grindavík í því fyrsta. Liðin mættust fyrir mánuði í deildinni þar sem Grindavík fór með sigur af hólmi, 76-53. Aðrir leikir í bikarkeppni kvenna …
Grindavík sækir Stjörnuna heim
Grindavíkingar fá ekki mikinn tíma til að sleikja sárin eftir bikartapið gegn KR því okkar menn sækja Stjörnuna heim í kvöld í Garðabæ kl. 19:15 í úrvalsdeildinni. Stjarnan mætir með glænýjan liðsmann í leikinn, Renato Lindmets, sem lék með þeim reyndar á síðustu leiktíð og er feiki öflugur. ,,Ég tel það vera augljóst af hverju við bætum við okkur, við …
Íhuga að kæra Sogndal vegna Alexanders
Grindvíkingar stóðu að því er virðist í vegi fyrir því að Alexander Magnússon færi á reynslu til Sogndal í Noregi eins og fram kom í fréttum í gærkvöldi. Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur segir í samtali við Víkurfréttir að lið Sogndal hefði brotið á Grindvíkingum og að það væri alkunna að norsk lið ættu í miklum fjárhagserfiðleikum. Grindvíkingar vilja því …










