Fjölnota íþróttahúsið Hópið er opið fyrir félaga Golfklúbbs Grindavíkur. Hópið er opið frá 17:30 til 18:30 alla sunnudaga. Tímarnir verða í umsjón Jóns Júlíusar Karlssonar stjórnarmanns.
Jafn í fyrsta leik Lengjubikars
Fyrsti leikur Grindavíkur í Lengjubikarnum í ár endaði með markalausu jafntefli. Leikið var gegn FH í Reykjaneshöllinni Byjunarlið Grindvíkur var skipað eftirfarandi leikmönnum.Óskar, Paul McShane, Alex Freyr, Matthías, Ameobi, Ólafur Örn, Magnús, Óli Baldur, Alexander, Daníel Leó og Loic Ondo. Óskar Pétursson átti mjög góðan leik en bæði lið fengu ágæt færi til að tryggja öll 3 stigin. Paul McShane …
Fjórir Grindvíkingar bikarmeistarar
Njarðvík var í dag bikarmeistari kvenna. Frábær árangur hjá nágrönnum okkar og óskum við þeim til hamingju með árangurinn. Grindavík á smá part í sigrinum því í byrjunarliðinu voru þrjár stelpur úr Grindavík þær Petrúnella Skúladóttir, Ólöf Helga Pálsdóttir og Harpa Hallgrímsdóttir. Fjórði leikmaðurinn, Andrea Björt Ólafsdóttir, tók einnig þátt í leiknum.
Lengjubikarinn á morgun
Grindavík hefur þáttöku sína í Lengjubikarnum á morgun þegar þeir taka á móti FH í Reykjaneshöllinni klukkan 16:30 Ágætlega hefur gengið hjá okkar mönnum á undirbúningstímabilinu þar sem þeir urðu í 3 sæti í Fótbolti.net mótinu á dögunum. Í Lengjubikarnum er Grindavík í riðli með FH, Fjölni, Fylki, Eysteini og félögum í Hetti, Leikni, Val og Þór. Þess má geta …
Grindvíkingar stóðu sig vel á Kyu-móti í júdó
Kyu-mót 2012 í júdó var haldið í ÍR heimilinu laugardaginn 11. febrúar og mættu þrír Grindvíkingar til leiks, þeir Marcin Ostrowski, Guðjón Sveinsson og Sigurpáll Albertsson og unnu þeir allir sína flokka. Marcin fékk gull í -55kg flokki 13-14 ára. Guðjón fékk gull í -66kg flokki 17-19 ára. Sigurpáll fékk gull í -90kg flokki fullorðna (15+). Marcin keppti í tveimur …
Sunddeild UMFG keppti á alþjóðlegu sundmóti
Gullmót KR er fjölmennasta sundmót ársins. Mótið var haldið í Laugardalslauginni um helgina. Keppt var í 50m laug, töluverðar bætingar á tímum urðu hjá nokkrum af okkar fólki og aðrir voru að synda á sínum tímum. Magnús Már þjálfari er ánægður með hve vel gekk hjá okkar fólki sem var að keppa í fyrsta skipti, hann var einnig ánægður með …
Grindavík burstaði botnlið Vals
Grindvíkingar styrktu stöðu sína á toppi Iceland Express deildar karla með 38 stiga sigri á botnliði Valsmanna, 119-81 í Grindavík í gærkvöld. Þetta var áttundi deildarsigur Grindvíkinga í röð. Valsmenn eru enn án stiga. J´Nathan Bullock var stigahæstur hjá Grindavík með 19 stig, Páll Axel Vilbergsson skoraði 16 stig og Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15 stig. Grindavík var 33-21 yfir eftir …
Æfingar í Hraunkoti á föstudögum
Golfæfingar barna- og unglinga hjá GG verða eftirleiðis á föstudögum frá kl. 18:00-19:00 í Hraunkoti í Hafnarfirði. GG hvetur alla krakka til að mæta. Jóhann K. Hjaltason PGA golfkennari mun sjá um kennsluna. Fyrirhugað er að hafa einnig æfingar einu sinni í viku í Hraunkoti, Hafnarfirði. Upplýsingar um það er að fá hjá Jóhanni.
Öruggur sigur liðsheildarinnar
Grindavík hélt áfram sigurgöngu sinni í Iceland Express þegar þeir lögðu Val í gærkveldi 119-81 Leikurinn var merkilegur fyrir þær sakir að allir leikmenn á skýrslu fengu meira en 8 mínútur af leiktíma og komust allir 12 á blað. Ekki nóg með það þá tóku allir 12 leikmenn frákast í leiknum og allir nema einn með stoðsendingu. Af …
3 keppendur, 3 gull
Grinvíkingar stóðu sig vel á Kyu-móti í júdó. Kyu-mót 2012 var haldið í ÍR heimilinu laugardaginn 11. febrúar og mættu þar 3 Grindvíkingar til leiks, þeir Marcin Ostrowski, Guðjón Sveinsson og Sigurpáll Albertsson og unnu þeir allir sína flokka. Marcin fékk gull í -55kg flokki 13-14 ára Guðjón fékk gull í -66kg flokki 17-19 ára Sigurpáll fékk gull í …










