Gunnar Þorsteinsson sem er á mála hjá Ipswich var í gær valinn „young player of the season“ á lokahófi leikmanna. Fyrr í vikunni varð hann fyrir valinu sem besti leikmaður unglingaliðsins hjá stuðningsmannaklúbb liðsins, svokallaðan Dale Roberts bikar. Carlos Edwards var hinsvegar valinn leikmaður tímabilsins hjá aðalliðinu. Gunnar hefur leikið vel með U18 ára liði Ipswich í vetur en hann …
Færðu Teiti blóm
Grindvíkingar launuðu Teiti Örlygssyni þjálfara Stjörnunnar fyrir skjót og fagmannleg vinnubrögð þegar Ólafur Ólafsson meiddist í leik Stjörnunnar og Grindavíkur á dögunum eins og frægt er nú orðið. Teiti var færður blómvöndur fyrir leik Grindvíkinga og Þórs í gærkvöldi og áhorfendur klöppuðu honum lof í lófa. Mynd: Víkurfréttir
Fyrsta skrefið í átt að stóra titlinum
Þetta lítur vel út. Grindavík sigraði Þór 93-89 í fyrstu rimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla eftir æsispennandi lokasprett. Grindvíkingar voru sterkari aðilinn allan tímann en Þórsarar eru ótrúlega seigir hefðu hæglega getað stolið sigrinum í lokin. Sigurður Gunnar Þorsteinsson gaf tóninn fyrir Grindavík og hóf leikinn með troðslu og Grindavík tók öll völd á vellinum. Mikið var skorað …
Myndasyrpa úr Röstinni
Það var líf og för í Röstinni í gærkvöldi þegar Grindavík lagði Þór í fyrstu rimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Þorsteinn Gunnar Kristjánsson ljósmyndari var á leiknum og hér má myndasyrpu frá honum.
Tveir enskir leikmenn til Grindavíkur
Grindvíkingar hafa fengið liðsstyrk fyrir sumarið en Jordan Edridge og Gavin Morrison munu leika með liðinu í Pepsi-deildinni. Jordan hefur verið til skoðunar hjá Grindvíkingum undanfarið en Gavin er væntanlegur til landsins á morgun. Gavin leikur með Inverness og kemur þaðan að láni. Báðir spila þeir á miðjunni. Gavin er 22 ára en hann spilaði fimm leiki með Inverness í skosku úrvalsdeildinni …
Myndband af troðslu Bullock
Af mörgum glæsilegum tilþrifum gærkvöldsins var troðsla J’Nathan Bullock með þeim flottari sem sést hefur lengi. Leikbrot var með myndavélina á leiknum í gær og náði henni ágætlega á video Samsett mynd hjá karfan.is nær henni einnig vel.
Nýjir leikmenn
Grindvíkingar hafa fengið liðsstyrk fyrir sumarið en Jordan Edridge og Gavin Morrison munu leika með liðinu í Pepsi-deildinni. Jordan hefur verið til skoðunar hjá Grindvíkingum undanfarið en Gavin er væntanlegur til landsins á morgun. Gavin leikur með Inverness og kemur þaðan að láni. Báðir spila þeir á miðjunni. Gavin er 22 ára en hann spilaði fimm leiki með Inverness í skosku …
Sokkarnir færa mér gæfu
Úrslitarimma Grindavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn í Iceland Express-deild karla hefst í kvöld í Grindavík. Grindavík lagði Stjörnuna í undanúrslitum á meðan Þór ýtti KR úr vegi. Miðherji Grindavíkur, Sigurður Þorsteinsson, hefur vakið athygli fyrir sokkana sem hann skartar í úrslitakeppninni. Er um að ræða eldgamla fótboltasokka merkta Grindavík. „Óli Óla kom með þá hugmynd að við yrðum með þema …
Baráttan um titilinn hefst í kvöld – Upphitun á Salthúsinu
Stuðningsmenn Grindavíkur eru hvattir til þess að hita upp fyrir stórleikinn gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld með því að mæta í Salthúsið fyrir leik en húsið opnar kl. 17:30. Þar mun stuðningsmannahópur körfuboltans í samstarfi við Láka í Salthúsinu grilla hamborgara sem seldir verða á 700 kr. Einar Hannes og Jón Gauti verða grillmeistarar og byrja þeir að grilla kl. …
Þjálfararnir í úrslitum: Annar er með trompin en hinn mannsspilin
Röstin verður smekkfull í kvöld, mætið tímanlega. Karfan.is fór á stúfana og vildi endilega heyra frá fagmanni út af þjálfurunum í úrslitaeinvíginu þetta tímabilið. Benedikt Guðmundsson stýrir skútunni frá Þorlákshöfn en Helgi Jónas Guðfinnsson er við stjórnartaumana í Grindavík. Í tilfelli Benedikts er um að ræða margreyndan þjálfara sem hefur verið lengi að en í tilfelli Helga Jónasar erum við …










