Tap gegn Fram í sjö marka leik

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík tapaði fyrir Fram 4-3 í fjörugum leik á Laugardalsvelli í úrvalsdeild karla. Grindavík er með 1 stig eftir þrjár umferðir og situr í botnsætinu. Næsti leikur liðsins er næsta mánudag á heimavelli gegn Stjörnunni. Fyrstu tuttugu mínúturnar í viðureign Fram og Grindavíkur voru heldur tíðindalausar en Framarar voru þó ögn frískari. Guðjón Þórðarsson, þjálfari Grindvíkinga var greinilega búinn að …

Norðurlandamótið í körfu

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Nokkrir Grindvíkingar eru á leiðinni til Svíþjóðar á Norðurlandamótið í körfubolta yngri landsliða. Í U-18 liði kvenna er Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir og núverandi leikmaður Njarðvíkur Andrea Björt Ólafsdóttir.Leikir U-18 kvenna verða eftirfarandi: Miðvikudagur 16. maí Ísland-Finnland   Fimmtudagur 17. maí Ísland-Svíþjóð   Föstudagur 18. maí Ísland-Noregur   Föstudagur 18. maí Ísland-Danmörk  Hilmir Kristjánsson og Jón Axel Guðmundsson eru í U-16 liðinu …

Garðar Örn dæmir leik Fram og Grindavíkur

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík sækir Fram heim á Laugardalsvöll í kvöld kl. 19:15 í 3. umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Grindavík verður með nýjan sænskan leikmann innanborðs. Grindavík hefur 1 stig en Fram, sem margir spáðu velgengni í sumar, hefur tapað báðum leikjum sínum og er enn án stiga. Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson sem hefur tekið flautuna af hillunni. Fjögur ár …

Grindavík fær sænskan varnarmann

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar hafa fengið sænska varnarmanninn Mikael Eklund til liðs við sig en hann hefur fengið leikheimild með félaginu. Eklund, sem er 31 árs, kemur frá IK Brage sem leikur í næstefstu deild í Svíþjóð. Eklund getur leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður en hann varð sænskur meistari með Kalmar FF árið 2008. Á ferli sínum hefur hann einnig leikið með Assyriska …

Fram 4 – Grindavík 3

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík mætti Fram í 3. umferð Pepsi deildar karla í kvöld.  Leikar enduðu 4-3 fyrir heimamenn. Í byrjunarlið Grindavíkur komu Ray Anthony Jónsson, Óli Baldur Bjarnason og nýr leikmaður Mikael Eklund. Grindavík byrjaði leikinn ágætlega, misstu aðeins dampinn um miðjan fyrri hálfleik en komumst aftur vel inn í leikinn og voru 2-0 yfir í hálfleik.  Mörkin skoruðu Ameobi þegar hann …

Sunneva á palli á ÍRB móti um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurSund

Sunneva Jóhannsdóttir hreppti bronsið í 100 m flugsundi Liðsmenn UMFG sem tóku þátt í mótinu stóðu sig vel og voru að synda nálægt sínum tímum. Það voru kátir krakkar sem hittust í pottinum í kvöld og slökuðu á eftir mótið. Þau fengu góða heimsókn því krakkarnir úr fyrsta A-hóp komu í pottinn með þeim.

Lokahófk KKÍ

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Lokahóf KKÍ var haldið í Stapanum í Njarðvík í gær þar sem nokkrir Grindvíkingar voru verðlaunaðir. J’Nathan Bullock var kjörinn besti erlendi leikmaðurinn, Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari ársins og Sigurður Gunnar Þorsteinsson í úrvalslið ársins. Af öðrum verðlaunum var það helst að frétta að sá sem tekur við af Helga Jónasi, Sverrir Þór Sverrisson, var kjörinn þjálfari ársins í kvennaflokki …

Skellur gegn nágrönnunum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík steinlá fyrir Keflavík 4-0 í grannaslag á Grindavíkurvelli. Eftir fína frammistöðu í fyrsta leiknum gegn FH voru Grindvíkingar langt frá sínu besta í gær og eru því með eitt stig eftir tvær umferðir. Næsti leikur er á útivelli gegn Fram. Keflavíkingar brutu ísinn á 19. mínítu og á tæplega 20 mínútna kafla gerðu þeir út um leikinn með þremur …

Sverrir Þór tekur við Grindavíkurliðinu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík var ekki lengi að ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara eftir að Helgi Jónas Guðfinnsson tilkynnti að hann gæti ekki þjálfað liðið áfram. Sá sem varð fyrir valinu er nýkrýndur tvöfaldur meistari kvennaliðs Njarðvíkur, Sverrir Þór Sverrisson. „Ég er gríðarlega spenntur að taka við nýkrýndum Íslandsmeisturum Grindavíkur. Ég geri mér grein fyrir að þar eru alltaf miklar kröfur og …

Nágrannaslagur af bestu gerð

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Fyrsti heimaleikur sumarsins í úrvalsdeild karla er í kvöld og hann er ekki af verri endanum, nágrannaslagur Grindavíkur og Keflavíkur. Bæði lið gerðu jafntefli í fyrstu umferðinni en síðan þá bætast þrír leikmenn í leikmannahóp Grindavíkur, þeir Alexander Magnússon og Magnús Björgvinsson sem voru meiddir og svo Englendingurinn Jordan Edridge sem hefur fengið leikheimild. Edridge hefur verið við æfingar hjá …