Grindavík fær sænskan varnarmann

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar hafa fengið sænska varnarmanninn Mikael Eklund til liðs við sig en hann hefur fengið leikheimild með félaginu. Eklund, sem er 31 árs, kemur frá IK Brage sem leikur í næstefstu deild í Svíþjóð.

Eklund getur leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður en hann varð sænskur meistari með Kalmar FF árið 2008.

Á ferli sínum hefur hann einnig leikið með Assyriska FF og Forssa BK í Svíþjóð.

Eklund er kominn með leikheimild með Grindavík og hann getur því leikið með liðinu gegn Fram í Pepsi-deildinni annað kvöld að því er fram kemur á fotbolti.net