Sverrir Þór tekur við Grindavíkurliðinu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík var ekki lengi að ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara eftir að Helgi Jónas Guðfinnsson tilkynnti að hann gæti ekki þjálfað liðið áfram. Sá sem varð fyrir valinu er nýkrýndur tvöfaldur meistari kvennaliðs Njarðvíkur, Sverrir Þór Sverrisson.

„Ég er gríðarlega spenntur að taka við nýkrýndum Íslandsmeisturum Grindavíkur. Ég geri mér grein fyrir að þar eru alltaf miklar kröfur og það verður spennandi að koma inn í þetta umhverfi,” sagði Sverrir við heimasíðu UMFG.

Magnús Andri Hjaltason, formaður kkd.umfg var ánægður með ráðninguna:

„Við erum ánægðir að hafa náð í þennan góða kost sem við teljum Sverri klárlega vera. Við væntum mikils af hans störfum hjá okkur en hans bíður auðvitað erfitt verk að feta í fótspor Helga og krafan er alltaf sú sama, að stefna á alla titla.”