Grindavík vann góðan sigur á toppliði Stjörnunnar með fjögurra stiga mun, 90 stigum gegn 86. Þar með komst Grindavík upp að hlið Stjörnunnar í 2. sæti deildarinnar. Leikurinn var jafn framan af en Grindavík tók mikinn sprett í öðrum leikhluta en staðan í hálfleik var 48-41, Grindavík í vil. Stjarnan tók þriðja leikhluta með trompi og náði forystunni en góður …
Grindavík 90 – Stjarnan 86
Grindavík vann mikilvægan sigur á Stjörnunni í gær 90-86 Snæfell og Stjarnan voru líkleg til að setja smá bil í toppbaráttunni milli sín og nokkra liða sem eru jöfn um miðja deild. Grindavík heldur sér í toppbaráttunni með sigrinum í gær og er ásamt Stjörnunni í 2-3 sæti með 10 stig, Snæfell efst með 12 stig. Úr tölfræðinni frá leiknum …
Sex stiga tap gegn toppliði Keflavíkur
Grindavík tapaði með sex stiga mun fyrir Keflavík í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í gærkvöldi, 65-71. Þetta var hörku leikur en Keflavík var sterkara liðið í seinni hálfleik. Grindavík byrjaði með látum og hafði eins stigs forystu í hálfleik, 16-15. Sami munur var í hálfleik, 33-32, Grindavík í vil. En í seinni hálfleik virtist úthald Grindavíkurstúlkna ekki upp á það …
Stórleikur Helga Más dugði skammt
Keflavík B og ÍG mættust í gærkvöld í Toyotahöllinni í Powerade bikarnum í gærkvöldi. Leikur þessi var umspil um leik gegn Njarðvík í 32ja liða úrslitum. Leikurinn var nokkuð jafn framan af eða þangað til í öðrum leikhluta þá náðu heimamenn 10 stiga forystu og leiddu með þeim mun í hálfleik 38:28. Keflvíkingar héldu áfram að þjarma að Íþróttafélagi Grindavíkur …
Íslandsmeistararnir mæta toppliðinu
Sannkallaður stórleikur er í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld þegar Íslandsmeistarar Grindavíkur taka á móti efsta og heitasta liði landsins í dag, Stjörnunni, í Röstinni kl. 19:15. Stjarnan hefur 10 stig líkt og Snæfell en Grindavík hefur 8 stig. Grindavíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna og styðja við bakið á strákunum okkar.
Alex Freyr og Aron Snær á landsliðsæfingum
Alex Freyr Hilmarsson leikmaður Grindavíkur hefur verið valinn í 45 manna æfingahóp U21 árs landsliðsins sem æfir um helgina. Þá eru æfingar um helgina hjá U17 og þar er einn Grindvíkingur, markvörðurinn Aron Snær Friðriksson.
Grindavík 65 – Keflavík 71
Stelpurnar stóðu í efsta liði Dominosdeildarinnar í gær en máttu þola tap undir lokin Leikurinn fór fram í Grindavík í gær og var jafn og spennandi allan tíman. Grindavík byrjaði vel en gestirnir komu til baka og var 1-3 stig á milli liðanna fram að hálfleik. Snemma í seinni hálfleik komumst Keflavík yfir og bættu í, voru komnar með 9 …
Stórleikur í kvöld
Grindavík tekur á móti Stjörnunni í kvöld klukkan 19:15 Það má búast við stórskemmtilegum leik ef litið er á fyrri viðureignir þessara liða. Stjarnan er á toppi deildarinnar ásamt Snæfell en Grindavík einu sæti neðar með 8 stig eftir 6 leiki. Grindavík þarf því sigur ef við viljum halda okkur í toppbaráttunni. Tveir af betri mönnum deildarinnar þeir Justin Shouse …
Stórleikur nágrannaliðanna í kvöld
Það verður heldur betur risaslagur í kvennakörfuboltanum í kvöld þegar Grindavík tekur á móti nágrönnum sínum, toppliði Keflavíkur, í Röstinni kl. 19:15. Grindavíkurstelpur hafa sótt í sig veðrið upp á síðkastið eftir erfiða byrjun. Keflavík hefur verið óstöðvandi og unnið alla 8 leiki sína. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna og styðja við bakið á stelpunum.
Grindavík – Keflavík
Stórleikur nágrannaliðanna Grindavík og Keflavík fer fram í kvöld klukkan 19:15 Keflavík hefur byrjað mótið vel og eru efstar í töflunni eftir 8 leiki. Það hefur hinsvegar verið mikill stígandi í leik Grindavíkur og í kvöld fá þær verðugt verkefni til að sýna hvað í þeim býr. Allir Grindvíkingar eru hvattir til að mæta og styðja við stelpurnar.










