Í kvöld klukkan 19:15 fer fram leikur Grindavíkur og Keflavík í 12.umferð Dominosdeild karla. Grindavík eru einir í efsta sætinu og ætla að halda sér það. Keflavík er hinsvegar í sjötta sæti eftir stórsigur á ÍR í síðustu umferð. Grindavík sigraði tvo leiki um síðustu helgi og eru á góðu róli, enn taplausir á heimavelli. Nýju mennirnir Daníel G. Guðmundsson og …
Risakerfi í getraunum
Við ætlum að vera með risakerfi á laugardaginn 12 jan, 200.000.000 kr pottur. Seðillinn verður klár á hadegi á föstudag. Fyrstir koma fyrstir fá hluturinn á 4.000 krHægt er að leggja inn á reikning 0143-05-60020 kt 640294-2219. Laugardaginn 19.jan ætlum við að byrja með getraunaleik þar sem fyrsti vinningur verður ferð til Englands á leik fyrir tvo.Verður nánar auglýst eftir …
Firmakeppnin
Meistaraflokkur karla mun standa fyrir firmakeppni í Hópinu 19. janúar næstkomandi Firmakeppnin hefst kl 14:00. Reglurnar: 5 inná í einu (1 markmaður og 4 útispilarar). Ótakmarkaður fjöldi skiptimanna. Leiktími 1 x 12 mín Allir leikmenn gjaldgengir Fyrirkomulag: Mótinu verður skipt upp í fjóra riðla og fara 2 efstu lið úr hverjum riðli í 8 liða úrslit. Þátttökugjald er 25.000 krónur. …
Firmamót í Hópinu
Laugardaginn 19. janúar verður haldið firmamót í Hópinu í Grindavík á vegum meistaraflokks karla í knattspyrnu. Mótið verður með öðru sniði en síðastliðin 26 ár þar sem nú verður leikið á gervigrasi. Búist er við bullandi stemningu og frumlegum fagnaðarlátum Reglurnar: 5 inná í einu (1 markmaður og 4 útispilarar). Ótakmarkaður fjöldi skiptimanna. Leiktími 1 x 12 mín Allir leikmenn gjaldgengir Fyrirkomulag: Mótinu verður skipt …
Íþróttaskóli UMFG
Námskeið íþróttaskóla UMFG (fyrir börn á leikskólaaldri) hefst Sunnudaginn 13.janúar og stendur yfir í fimm skipti. Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Grindavíkur og hefst kl 10:00-10:40 á Sunnudögum. Skráningar fara fram á facebook síðunni okkar (íþróttaskóli UMFG) eða með því að senda tölvupóst á netfangið petrunella@grindavik.is. Námskeiðið verður haldið ef næg þáttaka næst 😉 Námskeiðið kostar 3,000 kr. Skemmtilegt námskeið fyrir börn á …
Grindavík í undanúrslit bikarsins
Grindavík burstaði 1. deildarlið Reynis í Sandgerði með 112 stigum gegn 68 og tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ. Yfirburðir Grindvíkinga voru miklir og dreifðist spilatíminn vel á milli liðsmanna. Grindavík hafði níu stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 18 stiga forskot í hálfleik en það var reyndar ekki fyrr en í síðasta leikhlutanum sem Grindavík setti í fluggírinn með …
3 leikir / 3 sigrar
Meistaraflokkarnir léku þrjá leiki um helgina og unnust þeir allir. Fryst mætti karlaliðið Tindastól og sigruðu 89-74. Samuel Zeglinski var stigahæstur með 19 stig og Aaron Broussard 18 stig og 13 fráköst. Á laugardeginum sigruðu stelpurnar KR í baráttuleik. Hér fyrir neðan er umfjöllun frá karfan.is og myndin hér að ofan er fengin af sama stað: „Grindavík byrjaði að pressa strax …
Stelpurnar byrja 2013 með látum
Grindavíkurstelpur byrjuðu nýja árið með látum og skelltu KR í úrvalsdeild kvenna í körfubolta með 67 stigum gegn 56. Grindavíkurstelpur börðust eins og grenjandi ljón allan tímann og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. KR lék án bandarísks leikmanns og hafði það eflaust talsvert að segja. En það verður ekki tekið af heimastúlkum að þær léku mjög vel í fyrri hálfleik og …
Íslandsmeistararnir tróna einir á toppnum
Grindavík vann nokkuð öruggan heimasigur á Tindastóli 89-74 þegar Íslandsmótið í körfubolta karla hófst á ný eftir jólafrí. Þar með trónir Grindavík eitt liða á toppnum. Íslandsmeistararnir höfðu fimmtán stiga forystu að loknum fyrsta leikhluta og sá var munurinn ennþá þegar lokaflautan gall. Sammy Zeglinski skoraði mest Grindvíkinga eða 19 stig en á hæla honum kom Aaron Broussard með 18 …
Körfuboltavertíðin af stað af nýju
Körfuknattleiksvertíðin hefst á ný í kvöld eftir jólafrí. Grindavík tekur á móti Tindastóli í Röstinni kl. 19:15. Grindavík trónir á toppi deildarinnar ásamt Þór Þorlákshöfn með 16 stig en Tindastóll er í neðsta sæti með fjögur stig. Engu að síður má búast við jafnari leik en ætla má. Tindastóll hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu, unnu deildarbikarinn og …










