Guðfinnur í Grindavík – Loic farinn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík hefur fengið sóknarmanninn Guðfinn Ómarsson frá Þrótti. Hann er þrítugur og hefur verið fastamaður í Þrótti undanfarin ár, hann lék 19 leiki í 1. deildinni í fyrra og skoraði 3 mörk. Hann hefur einnig leikið með ÍR. Samtals hefur Guðfinnur leikið 197 leiki í deild og bikar og skorað 30 mörk. Hins vegar er varnarmaðurinn Loic Mbang Ondo genginn …

Miðamál

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Enn er hægt að kaupa miða á þessa tvo stóru viðburði sem fram fara á morgun. Forsalan á leikinn er búin en hægt er að kaupa miða á midi.is.  Það eru einnig nokkrir miðar lausir á þorrablótið en þá er hægt að nálgast hjá Gauta í Olís eða hjá Eirík í gulahúsi

Leikskráin

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Körfuknattleiksdeildin gaf út veglega leikskrá fyrir bikarleikinn á morgun. Var hún borin í hús í vikunni en hægt er að ná í eintak í tölvuna hér. Í blaðinu er m.a. að finna skemmtilegt viðtal við Þorleif Ólafsson fyrirliða Grindavíkur og þá rifjar Nökkvi Már Jónsson upp fyrsta bikarúrslitaleik Grindavíkur í Laugardalshöllinni 1994.   

Spennan magnast

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Bikarúrslitaleikur Grindavíkur og Stjörnunnar í körfubolta karla verður í Laugardalshöll næsta laugardag kl. 16:00. Upphitun hefst í Þróttaraheimilinu kl. 12. Rútuferð verður frá íþróttahúsinu í Grindavík kl. 12:30 og kostar 500 kr. rútumiðinn. Forsala aðgöngumiða á leikinn er í Olís, miðaverð er 1.500 kr. (kostar 2.000 kr. á leikdegi). Ókeypis fyrir 12 ára og yngri.   Heppnir áhorfendur fá tækifæri …

2 daga í leikinn

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Nú er aðeins tveir dagar í bikarúrslitaleikinn þar sem Grindavík og Stjarnan mætast klukkan 16:00 Forsalan hjá Gauta í Olís er til klukkan 18:00 í dag og um að gera að ná sér í miða með 500 kr afslætti. Rútuferðin er frá íþróttahúsinu í Grindavík kl. 12:30 og kostar 500 kr. miðinn.  Upphitun fyrir leikinn fer fram í Þróttaraheimilinu þar sem …

Fróðlegur fyrirlestur um dómaramál

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Sigurður Óli Þórleifsson FIFA knattspyrnudómari héld fróðlegan fyrirlestur um dómaramál í Gula húsinu í gær. Um 25 iðkendur og foreldrar mættu. Sigurður Óli, sem er ný fluttur til Grindavíkur, fór vítt og breitt um dómaraumhverfi heima og erlendis og sagði meðal annars frá því að mikil tækifæri væru fyrir unga og efnilega dómara að dæma á erlendri grundu.  Einnig kom …

Dregið í riðla hjá stelpunum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Riðlaskipting er klár fyrir keppni í 1. deild kvenna í sumar. Í 1. deild kvenna eru leikið í tveimur riðlum þar sem annar inniheldur níu félög en hinn átta. Leikin er tvöföld umferð áður en kemur í fjögurra liða úrslitakeppni. Riðill Grindavíkur er eftirfarandi: B-riðill:  Fjarðabyggð Fjölnir Grindavík Höttur Keflavík KR Sindri Völsungur Það er því ljóst að talsverð ferðalög bíða Grindavíkurstúlkna í sumar. En liðinu hefur …

4 dagar – Rútuferð í bikarúrslitaleikinn – Upphitun í Þróttaraheimilinu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Nú eru aðeins fjórir dagar í bikarúrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar í Laugardalshöllinni. Boðið verður upp á rútuferð á laugardaginn frá íþróttahúsinu kl. 12:30 (hálf eitt). Fyrstir koma, fyrstir fá – en miðaverð í rútuferðina, fram og til baka, er 500 kr. Farið verður í Þróttaraheimilið í Laugardal sem sem Grindvíkingar munu hita upp fyrir leikinn. Upphitun hefst kl. 12, leikurinn …

Forsala og upphitun

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Eins og allir bæjarbúar vita þá er bikarúrslitaleikurinn á laugardaginn.  Forsala á leikinn fer fram í Olís til klukkan 18:00 á fimmtudag.  Miðaverð í forsölu er 1.500 kr. en ókeypis er fyrir 12 ára og yngri. Boðið verður upp á rútuferð á laugardaginn frá íþróttahúsinu kl. 12:30, fyrstir koma, fyrstir fá.  Miðaverð í rútuna fram og til baka er 500 …

Fimm dagar – Grindvíkingar þekkja bikarstemmninguna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

„Þetta eru tvö góð lið á góðum stað. Stjarnan er með nýjan útlending og spurning hvaða áhrif það hefur. Við erum virkilega vel stemmdir og ætlum okkur ekkert annað en sigur. Mín reynsla er sú að mestu máli skipti í tengslum við þennan stórleik er að nálgast hann á þann hátt að halda sömu rútínu og fyrir alla aðra leiki. …