Taekwondókappinn Gísli Þráinn Þorsteinsson vann til gullverðlauna í sínum flokki á Íslandsmótinu í bardaga sem haldið var í Laugardalnum fyrir skömmu. Gísli stóð sig frábærlega vel og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á afar sannfærandi hátt. Á myndinni eru Björn Lúkas og Gísli Þráinn.
Grindavík – Fjölnir í Lengjubikarnum
Síðasti leikur Grindavíkur í Lengjubikarnum fer fram í kvöld klukkan 20:30 Mæta strákarnir þá Fjölni í Reykjaneshöllinni. Fjölnir er enn án sigurs í deildinni en Grindavík unnið 2, töpuðu í síðasta leik gegn FH 2-1. Fjölnir og Grindavík eru saman í 1.deildinni í sumar(mætast þó ekki fyrr en 4.júlí) og því upplagt að sjá stöðuna á þessum liðum fyrir komandi …
Kynningarmyndband um uppbyggingu íþróttamannvirkja
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur ákveðið að hefja miklar framkvæmdir við íþróttamannvirki bæjarins. Eru þær kynntar í meðfylgjandi myndbandi sem hægt er að sjá hér. Með endurskipulagningu og nýbyggingum á íþróttasvæði Grindavíkur er áætlað að bæta verulega aðstöðu til íþróttaiðkunar, keppnishalds og félagsstarfs í Grindavík. Í hönnun aðstöðunnar er tekið tillit til mismunandi þarfa ólíkra íþróttagreina, skólastarfs, starfsmanna og gesta án þess að …
Gísli Þráinn Íslandsmeistari í bardaga
Gísli Þráinn Þorsteinsson vann til gullverðlauna í sínum flokki á Íslandsmótinu í bardaga sem haldið var í Laugardalnum 16. mars síðastliðinn. Gísli stóð sig frábærlega vel og við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn. Á myndinni eru Björn Lúkas og Gísli Þráinn
Íþróttaskóli UMFG
Námskeið íþróttaskóla UMFG ( fyrir börn á leiksskóla aldri ) Námskeið íþróttaskóla UMFG hefst Sunnudaginn 14.apríl 2013 og stendur yfir í fimm skipti. Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Grindavíkur og hefst kl 10:00-10:40 á Sunnudögum. Skráningar fara fram á facebook síðunni okkar (íþróttaskóli UMFG) eða með því að senda tölvupóst á netfangið petrunella@grindavik.is. Námskeiðið verður haldið ef næg þáttaka næst …
Þriðji leikurinn
Þriðji leikur Grindavíkur og KR í undanúrslitum Dominosdeild karla er í kvöld. Staðan er 1-1 í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitin. Ekkert gekk upp í síðasta leik en strákarnir ætla að sýna sitt rétta andlit í kvöld og koma stöðunni í 2-1. Nánast fullt er búið að vera á fyrstu tveimur leikjunum þannig að …
Grindavík – FH í dag
Grindavík tekur á móti FH í Lengjubikarnum í dag klukkan 14:00 í Reykjaneshöllinni. Liðin eigast við í riðli 1 í A deild. Grindavík hefur unnið tvo, tapað tveimur og gert eitt jafntefli til þessa. Fróðlegt er að sjá hvernig strákarnir koma undan æfingarferðinni til Spánar. Mánuður er í fyrsta leik í 1. deildinni og allt að slípast til. Eftir þennan …
Steinlágu í Vesturbænum
Íslandsmeistarar Grindavíkur voru teknir í bakaríið af KR-ingum í öðrum undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni körfuboltans og er staðan í einvígi jöfn 1-1. KR vann með 18 stiga mun og var mun sterkari aðilinn allan tímann. Lykilmenn Grindvíkinga voru langt frá sínu besta. Það voru aðallega varamennirnir Ryan Pettinella og Davíð Ingi Bustion sem létu eitthvað að sér kveða þegar þeir …
KR vs Grindavík – leikur 2
Grindavík og KR mætast öðru sinni í 4 liða úrslitum Dominosdeild karla í kvöld klukkan 19:15 Staðan í rimmunni er 1-0 fyrir Grindavík en í kvöld mæta þeir á erfiðan útivöll þar sem búast má við fullu húsi. Strákarnir þurfa því stuðning frá sem flestum Grindvíkingum til að hjálpa þeim á ná 2-0 í einvíginu. Hægt er að kaupa miða …
Liðsstyrkur til Grindavíkur
Grindvíkingar hafa gert eins árs samning við slóvenska varnarmanninn Alen Sutej en þetta staðfesti Eiríkur Leifsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar UMFG. Sutej hefur æft með Grindvíkingum að undanförnu en hann fór með liðinu í æfingaferð til Spánar. Sutej lék með Keflavík 2009 og 2010 áður en hann gekk til liðs við FH. Þar var Sutej að glíma við erfið meiðsli en hann …









