Liðsstyrkur til Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Grindvíkingar hafa gert eins árs samning við slóvenska varnarmanninn Alen Sutej en þetta staðfesti Eiríkur Leifsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar UMFG. Sutej hefur æft með Grindvíkingum að undanförnu en hann fór með liðinu í æfingaferð til Spánar. Sutej lék með Keflavík 2009 og 2010 áður en hann gekk til liðs við FH.

Þar var Sutej að glíma við erfið meiðsli en hann náði ekki að spila neinn mótsleik áður en hann yfirgaf herbúðir Fimleikafélagsins í fyrra.

Nú er ljóst að Sutej mun spila með Grindvíkingum í fyrstu deildinni í sumar en keppni þar hefst 9. maí.