Grindavík mætir Þrótturum á Valbjarnarvelli í kvöld klukkan 19:15 Þróttur er í næst neðsta sæti deildarinnar en hafa í sínum hóp marga ágæta leikmenn sem geta ýtt þeim ofar á töflunni. Grindavík er hinsvegar að spila mjög vel þessa dagana og til alls líklegir. Hafa skorað 14 mörk í síðustu 3 leikjum og ætla sér að tryggja stöðu sína á …
Pálína til Grindavíkur
Ein besta körfuboltakona landsins, Pálína María Gunnlaugsdóttir, mun leika með Grindavík í Domino´s deild kvenna á næstu leiktíð en hún samdi í gærkvöld við félagið. Hún lék áður með Íslandsmeisturum Keflavíkur þar sem hún var í aðalhlutverki. Í fréttatilkynningu frá Grindvíkingum segir: „Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur/kvennaráð er stolt að tilkynna hér með að eftirsóttasti leikmaður á markaðnum í íslenskum kvennakörfuknattleik, …
Bjarni fór holu í höggi eftir 32 ára bið
Grindvíkingurinn Bjarni Andrésson úr Golfklúbbi Grindavíkur fór holu í höggi í síðustu viku. Draumahöggið sló hann á 7. braut á Húsatóftavelli og er þetta í fyrsta sinn sem Bjarni fer holu í höggi. „Ég er búinn að spila golf í 32 ár og er búinn að bíða ansi lengi,“ segir Bjarni kátur. Höggið hjá Bjarna var skrautlegt. Hann ætlaði að …
Sumarnámskeið Sunddeildar UMFG
Sumarnámskeið Sunddeildar UMFG Sunddeild UMFG býður í sumar uppá tvö námskeið í Grindavíkurlaug. Sundþjálfarar á námskeiðinu verða Magnús Már Jakobsson margreyndur sundþjálfari. Helena Ósk Ívarsdóttir 22 ára fyrrverandi landsliðskona í sundi, Erla Sif Arnardóttir 19 ára sundkona auk aðstoðarmanna sem eru elstu iðkendur sunddeildarinnar. Eftirfarandi námskeið verða í boði í sumar. 24.júní …
Sumarnámskeið Sunddeildar UMFG
Sumarnámskeið Sunddeildar UMFG Sunddeild UMFG býður í sumar uppá tvö námskeið í Grindavíkurlaug. Sundþjálfarar á námskeiðinu verða Magnús Már Jakobsson margreyndur sundþjálfari. Helena Ósk Ívarsdóttir 22 ára fyrrverandi landsliðskona í sundi, Erla Sif Arnardóttir 19 ára sundkona auk aðstoðarmanna sem eru elstu iðkendur sunddeildarinnar. Eftirfarandi námskeið verða í boði í sumar. 24.júní …
Markaveisla hjá stelpunum
Grindavíkurstelpur áttu ekki í nokkrum vandræðum með Fjarðabyggð þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í gær. Margrét Albertsdóttir og Anna Þórunn Guðmundsdóttir skoruðu tvö mörk hvor og þær Ágústa Jóna Heiðdal og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir sitt markið hvor. Grindavík var yfir 4-1 í hálfleik og því var sigurinn ansi þægilegur og öruggur þrátt fyrir forföll í liðinu og greinilegt …
Stórsigur hjá stelpunum
Grindavík sigraði Fjarðabyggð í 1.deildinni í gær. Nóg var af mörkunum í gær því Grindavík skoraði 6 slík á móti 1 marki gestanna. Mörk Grindavíkur skoruðu Margrét Albertsdóttir (tvö), Anna Þórunn Guðmundsdóttir(tvö), Ágústa Jóna Heiðdal og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir. Anna Þórunn er það með orðinn markahæst í B riðli ásamt Fanney frá Hetti með 4 mörk. Staðan er frekar einkennileg í upphafi móts …
Flugeldasýning í seinni hálfleik
Grindvíkingar unnu Völsung á heimavelli 4:2 í gær og komust á topp 1. deildarinnar. Gestirnir komust í tvö núll en spilamennska þeirra hrundi í síðari hálfleik og Grindavík fór á kostum og skoraði fjögur mark. Hafþór Mar Aðalgeirsson skoraði tvisvar í fyrri hálfleik og kom gestunum í 0:2 en þannig var staðan í hálfleik. Milan Stefán Jancovic gerði tvær breytingar …
Sex mörk í sigurleik
Grindavík er aftur komið í toppsætið eftir 4-2 sigur á Völsungi í gær. Leikurinn var kaflaskiptur því gestirnig komust í 2-0 í fyrri hálfleik. Hafþór Mar Aðalgeirsson skoraði bæði mörk Völsungs. Grindavík var meira með boltann og það lá í loftinu að okkar menn mundu jafna í seinni hálfleik. Denis Sytnik Daníel Leó Grétarsson komu báðir inn á í upphafi seinni hálfleiks …
Grindavík – Fjarðabyggð
Stelpurnar í Grindavík taka á móti Fjarðabyggð í dag klukkan 14:00. Er þetta annar leikur stelpnanna í 1.deild því leiknum gegn Keflavík var frestað á dögunum. Fjarðabyggð hefur hinsvegar spilað tvo leiki en ekki náð stigi ennþá. Fínasta veður er í bænum og því upplagt að skella sér á leik.








