Pálína til Grindavíkur

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Ein besta körfuboltakona landsins, Pálína María Gunnlaugsdóttir, mun leika með Grindavík í Domino´s deild kvenna á næstu leiktíð en hún samdi í gærkvöld við félagið. Hún lék áður með Íslandsmeisturum Keflavíkur þar sem hún var í aðalhlutverki. Í fréttatilkynningu frá Grindvíkingum segir:  

„Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur/kvennaráð er stolt að tilkynna hér með að eftirsóttasti leikmaður á markaðnum í íslenskum kvennakörfuknattleik, Pálína Maíra Gunnlaugsdóttir hefur samið til tveggja ára við Grindavík. Sjórn og kvennaráð binda miklar vonir við Pálínu ekki bara vegna gæða hennar sem leikmanns heldur einnig hennar óseðjandi þrá til að sigra leiki og vinna titla. Deildin telur hana vera frábæra viðbót við þær stelpur sem fyrir eru í Grindavík þar sem reynsla, gæði og efniviður eru fyrir hendi.” 

Mynd/ Frá vinstri Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir, Pálína og Svanhildur Káradóttir