Frestaður leikur Grindavíkur og Keflavík fer fram í kvöld klukkan 19:15 Er þetta leikur í annari umferð 1.deild kvenna sem var frestað á sínum tíma. Grindavík er ósigrað í deildinni en hefur gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum sínum, gegn Fjölni og Hetti. Það er því komið að sigurleik ef stelpurnar ætla að halda sér í toppbaráttu í riðlinum. Grindvíkingar …
Fiskur í öll mál
Juraj Grizelj, leikmaður Grindavíkur í 1. deild karla í knattspyrnu, hefur svo sannarlega reynst happafengur fyrir þá gulklæddu í sumar. Hann hefur leikið frábærlega með liðinu í sumar og var í dag valinn í lið 7. umferðar 1. deildar karla af Fótbolta.net. Það er fjórða umferðin í röð sem Grizelj er í úrvalsliði umferðarinnar. „Ég er ánægður með þetta en …
Landsleikir á Grindavíkurvelli
Norðurlandamót stúlkna U17 fer fram á Íslandi dagana 1.-6. júlí. Tveir leikir fara fram á Grindavíkurvelli 1. júlí. Annars vegar Finnland og Holland kl. 12:30 og hins vegar stórleikur Íslands og Þýskalands kl. 16:00. Lokahópur Íslands hefur ekki verið valinn en að öllum líkindum verður Grindvíkingurinn Ingibjörg Sigurðardóttir í landsliðshópnum.
Jafntefli hjá stelpunum
Grindavík gerði markalaust jafntefli við Fjölni í B-riðli 1. deildar kvenna um helgina. Þetta var hörku leikur en bæði lið spiluðu öflugan varnarleik. Það var gaman að sjá að í byrjunarliðinu voru 10 Grindavíkurstúlkur og svo markvörðurinn Alice Harkness. Kelly L. Campell lék ekki með Grindavík en hún er farin aftur til Bandaríkjanna. Grindavík er í 4. sæti deildairnnar með …
Grindavík með þriggja stiga forskot
Grindavík hefur þriggja stiga forskot í 1. deild karla í knattspyrnu eftir sigur á Leikni 3-2 um helgina. Matthías Örn Friðriksson kom Grindavík yfir með glæsilegu skallamarki á 7. mínútu. Juraj Grzelj, maður leiksins, bætti við öðru marki fyrir Grindavík á 70. mínútu en þessi öflugi kantmaður hefur heldur betur slegið í gegn. Alex Freyr Hilmarsson kom inn á …
Markmannsæfingar
Markmannsæfingar hjá yngri flokkunum í fótbolta hefjast í dag. Á mánudögum kl. 16:15 eru markmannsæfingar fyrir 5., 6. og 7. flokk drengja og stúlkna. Á þriðjudögum kl. 16:15 eru markmannsæfingar fyrir 4. og 3. flokk drengja og stúlkna.
Grindavík 3 – Leiknir 2
Grindavík tók á móti Leikni í sjöundu umferð 1.deild karla. Þessi lið eiga sér ekki langa sögu í innbyrðis viðureignum, 4 leikir milli liðanna fyrir þennan leik þar sem Grindavík hafði unnið 3 og eitt jafntefli. Fjórði sigurinn kom í gær þar sem Grindavík vann leikinn 3-2. Matthías kom Grindavík yfir á 7. mínútu eftir hornspyrnu. Var þetta eina markið …
Toppslagur í 1. deildinni
Það verður toppslagur á Grindavíkurvelli á laugardag í 1. deild karla þegar Grindavík tekur á móti Leikni kl. 14:00. Grindavík trónir á toppnum með 15 stig en Leiknir er í 4. sæti með 12 stig og getur því jafnað Grindavík að stigum með sigri.
Sumarfjarnám 2013 þjálfaramenntun 1. stigs ÍSÍ
Sumarfjarnám 1. stigs í þjálfaramenntun ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 24. júní nk. og tekur átta vikur. Athugið að síðasti dagur til að skrá sig er í dag Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.- Allt efni er innifalið í gjaldinu s.s. bókin Þjálffræði sem send er heim til þátttakenda ásamt öðru efni. Námið er …
Nýr samningur Grindavíkurbæjar og UMFG
Grindavíkurbær og UMFG hafa skrifað undir nýja samning um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Gunnlaugur Hreinsson formaður UMFG skrifuðu undir samninginn sem gildir til þriggja ára. Bæjarráð samþykkti að gerður verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð kr. 2.500.000 sem kemur til lækkunar á handbæru fé. Þá hefur bæjarráð falið frístunda- og menningarnefnd að …










