Leikur Grindavíkur og Þórs sem settur var á í kvöld klukkan 19:15 hefur verið færður til morgundagsins. Stjarnan-Keflavík átti væntanlega að verða sjónvarpsleikurinn en Stjarnan er búið að klára það einvígi og verður því þessu leikur sýndur beint. En það breytir því ekki að Grindavík þarf þétt setinn Suðurstrandaveg á morgun til að hjálpa þeim að tryggja sæti í 4 …
Grindavík skellti Þórsurum – Ólafur með loftfimleika
Grindavík er komið í 2-1 í rimmunni við Þór Þorlákshöfn í 8 liða úrslitum úrvalsdeildar karla í körfubolta. Grindavík lagði Þórsara með 20 stiga mun, 87-67 en leikurinn var reyndar jafn framan af en Grindavík pakkaði gestunum saman á 10 mínútna kafla. Grindavík þarf einn sigurleik í viðbót til að tryggja sér sæti í undanúrslitum. Maður leiksins var Ólafur Ólafsson. …
Of margir dómarar eru ekki starfi sínu vaxnir
Grindavík mætir Þór Þorlákshöfn í þriðju rimmu liðanna um sæti í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfbolta, í Röstinni kl. 19:15. Í Fréttablaðinu í dag er viðtal vði Þorleif Ólafsson fyrirliða Grindavíkur um dómaramál. Þar segir: Mikla athygli vakti þegar Þorleifur Ólafsson hellti sér yfir Björgvin Rúnarsson, einn þriggja dómara leiks Grindavíkur gegn Þór á sunnudagskvöld. Þorleifur, sem er fyrirliði Grindavíkur, …
Risapottur og Risakerfi
Jæja þá er komið að næsta risaseðli! Við erum byrjaðir s.s. að selja í næsta seðil, potturinn fyrir 13 rétta verður örugglega í kringum 220 milljónir. Sama regla og síðast, sölu líkur 12:30 á laugardeginum – seljum hluti þangað til! Við ætlum að fá hópinn Charlies United sem fengu 13 réttu um síðustu helgi til að tippa, en þeir hafa …
Grindavík 2 – Þór Þ. 1
Grindavík er komið með yfirhöndina í einvíginu gegn Þór Þorlákshöfn í 8 liða úrstlium. Staðan er 2-1 og geta okkar menn tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri á sunnudaginn. Leikurinn í kvöld var frábær skemmtun, spennandi mest allan leikinn en Grindavík var sterkari á lokasprettinum og sigraði með 20 stiga mun. Gestirnir jöfnuðu einvígið í siðasta leik og …
Grindavík-Þór – leikur 3
Grindavík tekur á móti Þór frá Þorlákshöfn í kvöld í þriðja leik liðanna í 8 liða úrslitum Dominosdeild karla. Staðan í einvíginu eru 1-1 og því mikilvægt að ná aftur yfirhöndinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru allir hvattir til að mæta. Af 8 leikhlutum sem liðin hafa spilað í þessum tveimur leikjum hefur Grindavík aðeins sýnt …
Grindavík missteig sig í Þorlákshöfn
Grindavík tapaði fyrir Þór Þorlákshöfn í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla og þar með er staðan jöfn í einvígi liðanna, hvort lið hefur unnið einn leik. Óttast er að Þorleifur Ólafsson fyrirliði liðsins hafi slitið krossbönd í leiknum og verði ekki meira með. Þórsarar er erfiður heim að sækja og hraður sóknarleikur þeirra gerði Grindavíkurliðinu …
13 réttir og RISAPOTTUR um næstu helgi
Hópurinn Charlies United gerði það gott um helgina og nældi sér í 13 rétta og rúmar 100 þúsund krónur, til hamingju með það. Staðan í hópleiknum er galopin og flestir hópar eiga séns á verðlaunasæti, hérna má sjá stöðuna en aðeins er búið að henda út lélegustu vikunnni. Vinningar fyrir 10 og 11 rétta voru ekki greiddir út þannig að …
Héraðsdómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ 27. mars
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 27. mars kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Gunnar Jarl Jónsson FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu. Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Lögð …
Jafnt í einvíginu
Einvígi Grindavík og Þórs í 8 liða úrslitum Dominosdeild karla er jöfn eftir sigur Þórsara í gær 98-89. Það var fyrst og fremst lélegur fyrri hálfleikur sem lagði grunninn að tapi Grindavíkur því heimamenn leiddu með 14 stigum í hálfleik. Okkar menn komu sterkir til baka í þriðja leikhluta og komust yfir í stutta stund í fjórða leikhluta. Það dugði …










