Það verður sannkallaður risa nágrannaslagur mánudagskvöld þegar Grindavík og Keflavík mætast á Grindavíkurvelli kl. 19:15. Undanfarin tvö ár hafa vel á annað þúsund manns mætt á völlinn og stemmningin verið frábær. Í hálfleik skrifa knattspyrnudeild Grindavíkur og Landsbankinn undir nýjan samstarfssamning sem m.a. felur í sér að Landsbankinn afsalar sér auglýsingu á búning Grindavíkurliðsins en býður félaginu að velja sér …
Leikskrá og dagatal fótboltans kemur út í dag
Leikskrá knattspyrnudeildar Grindavíkur kemur út í dag og verður henni dreift í öll hús. Leikskrána má jafnframt skoða hér á vefnum. Leikskráin er 48 blaðsíður stútfull af skemmtilegu efni sem tengist fótboltanum í bænum. Jafnframt verður dagatali knattspyrnudeildarinnar dreift með Leikskránni. Á meðal efnis í leikskránni er ítarlegt viðtal við Ray Anthony Jónsson sem upplifði mikið ævintýri þegar hann lék …
Stelpurnar byrja á morgun
Pepsi deild kvenna byrjar á morgun, laugardag. Fyrsti leikur Grindavíkur er gegn markföldum Íslandsmeisturum Vals og fer leikurinn fram á Hlíðarenda klukkan 14:00
Tap í Kópavogi
Grindavík tapaði fyrir Íslandsmeisturunum í kvöld 2-1 Ólafur Örn stillti upp nokkuð breyttu liði frá Valsleiknum bæði þar sem Ray, Robert Winters, Magnús og Guðmundur Andri komu inn í liðið.Jack Giddens var í marki, bræðurnir Ólafur og Guðmundur hafsentar, Ray og Alexander bakverðir.Miðjan var stillt upp í tígul af fjórum spöðum þeim Jóhanni sem var aftastur, Jamie og Orri …
Breiðablik-Grindavík í kvöld
Grindavík sækir Íslandsmeistarana heim í kvöld Leikið verður á Kópavogsvelli og hefst leikurinn klukkan 19:15 Eftir sigurinn á Fylki í fyrstu umferð var tekin saman tölfræðin fyrir leiki Grindavíkur í Kópavogi frá aldamótum. Sést þar að Grindavík hefur spilað 8 leiki í Kópavoginum og sigrað 7 af þeim. Þannig að tölfræðin er með okkur en hún gefur ekkert þegar boltinn …
Dregið í Ofurhappdrætti fótboltans
Dregið var í Ofurhappdrætti knattspyrnudeildar UMFG í hálfleik á leik Grindavíkur og Vals, að viðstöddum fulltrúa sýslumanns. Vinninga er hægt að vitja gegn framvísun miða í Gulahúsinu. Eftirtalin númer voru dregin út: 1. Nr 1079…….Ferðavinningur frá Úrval Útsýn að upphæð 500.000.2. Nr 1105…….Ferðavinningur frá Úrval Útsýn að upphæð 150.000.3. Nr 867………Ferðavinningur frá Úrval Útsýn að upphæð 100.0004. Nr 48………..Ferðavinningur á …
Grindavík mætir KA
Dregið var í hádeginu í 32 liða úrslitum Valitor bikarsins Grindavík var síðasta liðið sem drógst upp úr pottinum og mæta því KA fyrir norðan. Leikið verður annaðhvort 25. eða 26. maí. Liðin mættust einnig í fyrra þar sem KA sló út Grindavík eftir vítakeppni og eigum við því harma að hefna.
Samningur við Eimskip
Knattspyrnudeild Grindavíkur og Eimskip skrifuðu undir nýjan samstarfssamning í hálfleik á leik Grindavíkur og Vals í gærkvöldi. Eimskip er einn öflugasti samstarfsaðili fótboltans í Grindavík og lýsti Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar, yfir mikilli ánægju með samninginn. Eimskip er umfangsmikið í útflutningi fyrir sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík. Á myndinni eru Þorsteinn og Brynjar Viggósson frá Eimskip.
Grindavík 0 – Valur 2
Í kvöld áttust við í annari umferð Pepsi deild karla Grindavík og Valur sem lauk með 2-0 sigri gestanna. Valur komst strax yfir á 18. mínútu og var þar að verki Arnar Sveinn Geirsson eftir sendingu frá Christian R. Mouritsen. Guðjón Pétur Lýðsson skoraði annað mark Valsmanna á 29. mínútu. Hættulegustu færi Grindavíkur áttu Scott Ramsay og Bogi Rafn Einarsson. …
Nýr leikmaður:Robbie Winters
Gengið hefur verið frá samningum við Robbie Winters sem æft hefur með liðinu undanfarna daga. Robbie Winters er 36 ára skoti og þar með fjórði leikmaðurinn frá Skotlandi enda hafa leikmenn þaðan reynst okkur vel. Robbie spilaði með Ólafi Erni hjá Brann og þar áður með skosku liðunum Dundee United, Aberdeen og nú síðast með Livingston. Með Brann skoraði hann …