Rætt við Guðjón

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Stjórn knattspyrnudeildar UMFG samþykkti á stjórnarfundi sínum að ganga til viðræðna við Guðjón Þórðarson sem næsta þjálfara liðsins. Guðjón er einn reynslumesti þjálfari landsins og hefur m.a. þjálfað íslenska landsliðið, í Englandi, Noregi og íslensk félagslið með góðum árangri. Vonast er til þess að gengið verði frá samningum um leið og Guðjón kemur til landsins úr fríi um næstu mánaðarmót.

Ólafur Örn spilar áfram með Grindavík en hættir sem þjálfari

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Ólafur Örn Bjarnason hefur ákveðið að halda áfram sem leikmaður Grindavíkurliðsins en stíga til hliðar sem þjálfari.  Ólafur Örn sýndi síðasta sumar að hann er enn einn allra öflugasti varnarmaðurinn í Pepsideildinni og átti stóran þátt í því sem leikmaður að Grindavík hélt sæti sínu í deildinni. Ólafur Örn vill einbeita sér að því að spila næsta sumar en hefur …

Fótboltaþing á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Á morgun, mánudag, fer fram fótboltaþing um framtíðarsýn fótboltans í Grindavík.  Samkoman fer fram í grunnskólanum og hefst klukkan 18:00 Allir velkomnir en þinginu stjórnar Pálmi Ingólfsson. Mikill uppgangur hefur verið í knattspyrnunni í Grindavík undanfarin 20 ár þar sem fórnfúst starf sjálfboðaliða, foreldra, uppbygging mannvirkja og metnaðarfullt starf hefur verið haft að leiðarljósi og skilað Grindavík í fremstu röð …

Leikmenn ársins

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Lokahóf knattspyrnudeildarinnar og var meðal atriði tilkynnt hverjir voru leikmenn ársins. Stinningskaldi kaus Guðmund Egill Bergsteinsson sem efnilegastann og Óskar Pétursson var kjörinn besti leikmaður ársins.     Milan Stefán Jankovic veitti verðlaun hjá 2. flokki karla.  Guðmundur Egill Bergsteinsson var þar kjörinn besti leikmaður og Sævar Ólafsson og Bjarni Þórarinsson tóku mestu framförum.     Jón Þór Guðbrandsson veitti …

Grindavík heldur sér uppi!!!

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík komu, sáu og sigruðu er þeir mættu til eyja og sóttu öll stigin þrjú sem tryggir þeim áframhaldandi veru í efstu deild. Grindavík var í þeirri stöðu fyrir leikinn að sigur var nauðsynlegur og ekkert hægt að stóla á aðra.  Grindavík var með 20 stig í næst neðsta sæti en Þór, Keflavík og Fram með 21 stig. Keflavík mætti …

Ferðir upp í Lava á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Lokahóf knattspyrnudeildarinnar verður haldið í Lava við Bláa Lónið á morgun.  Margir hafa spurst fyrir um bílferðir þangað en hægt verður að panta hjá Gunnari í Salty Tours í síma 820-5750 og hjá knattspyrnudeildinni í síma 698-2941

ÍBV – Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Þá er komið að lokaleik Íslandsmótsins í knattspyrnu 2011.  Grindavík sækir ÍBV heim á laugardaginn klukkan 14:00 Leikmenn Grindavíkur munu fara til eyja í dag.  Er það gert vegna veðurs því á morgun er spáð allt upp í 30 metrum á sekúndu og ekki hægt að taka áhættu á ferðalagi á laugardaginn. Veðrið einkenndi einnig leik þessara liða í eyjum …

Grindavík – Fram í dag

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Það styttist í leikinn við Fram og verður ýmislegt á döfinni fram að leiknum. Stuðningsmannaklúbburinn Stinningskaldi ætlar að hittast hjá Framsókn og byrja að grilla pylsur upp úr hálf tvö og eru allir hvattir til að mæta þangað. Klukkan þrjú hefst dagskráin á Grindavíkurvelli þar sem boltaþrautir fyrir krakkana verður til staðar auk þess að hamborgarar fyrir alla fjölskyldunua verða …

Krýsavíkurleiðin farin

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavíkurliðinu ætlar að reynast erfitt að tryggja sér sæti meðal bestu en þetta er ennþá í okkar höndum Vel var mætt á völlinn í kvöld og fínn stuðningur lengst af.  Byrjunarliðið var skipað eftirfarandi leikmönnum: Óskar í markinu, Orri og Ólafur hafsentar og Alexander og Jósef bakverðir.  Á miðri miðjunni voru Jamie og Jóhann. Fyrir framan þá Óli Baldur, Scotty …

Þurfum ekki að hræðast neitt

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Nú eru 30 tímar í leik Grindavíkur og Fram og menn farnir að setja sig í gírinn.  Í leikskrá sem kemur út í dag er viðtal við þjálfara liðsins. Undirbýrð þú liðið eitthvað öðruvísu fyrir þennan leik heldur en aðra í sumar?Nei maður reynir að haga undirbúningnum eins fyrir alla leiki. Ekkert að gera meira úr þessum leik en öðrum. …