Stelpurnar töpuðu gegn KR í annað sinn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavíkurkonur eru komnar í erfiða stöðu í úrslitakeppni 1. deildar eftir tap gegn KR á heimavelli í gær. KR konur eru því komnar í 2-0 í viðureigninni en vinna þarf 3 leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum. KR-ingar unnu alla leikina sína í deildina í vetur og eru því enn ósigraðar. Umfjöllun Víkurfrétta um leikinn í gær: Grindavík …

Tinna sigraði sterkan strákaflokk – Sjö grindvískir keppendur á verðlaunapalli

JudoÍþróttafréttir, Judó

Vormót JSÍ fyrir yngri iðkendur var haldið síðastliðna helgi og stóðu grindvískir júdókappar sig þar með sóma. Hæst bar þó árangur Tinnu Einarsdóttur, en hún tók gullverðlaun í sterkum strákaflokki. Tinna er ein af efnilegustu júdóiðkendum á landinu og keppir gjarnan upp fyrir sig um aldursflokka og jafnvel eldri strákum líka þar sem fáar stúlkur iðka íþróttina í hennar aldursflokki. …

Menningarhjólaferð á morgun

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Hin árlega menningarhjólaferð verður hjóluð á morgun, fimmtudaginn 22. mars. Hjólaður verður hinn svokallaði Bjarnahringur, 5,5 km hringur innan Grindavíkur. Mæting er klukkan 19:00 við aðalinngang íþróttahússins. Hjólað verður í um það bil klukkustund og svo endað í kaffibolla á Bryggjunni. Hver getur hjólað á sínum hraða og þessi leið er við allra hæfi. Endilega látið sjá ykkur, allar hjólreiðamenn á hverskonar hjólum …

Stólarnir léku Grindvíkinga grátt í Mustad-höllinni í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Það hljómar kannski eins og klisja en Tindastólsmenn mættu miklu ákveðnari til leiks í Grindavík í kvöld en heimamenn. Þeir byrjuðu leikinn 2-7 og Grindavík var 1-11 í skotum, þar til að Bullock setti langan tvist. Vörnin hjá Stólunum var harðlæst frá fyrstu mínútu og það skilaði sér ítrekað í auðveldum körfum hinumegin á vellinum. Stólarnir unnu alla leikhluta og …

Framlenging í fyrsta leik Grindavíkur og Tindastóls

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindvíkingar voru nokkuð nálægt því að stela heimavallarréttindum af Tindastóli í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla, en framlengja þurfti leikinn. Jafnt var á öllum tölum eftir 40 mínútur, staðan 81-81. Dagur Kár hafði komið Grindvíkingum 3 stigum yfir þegar 21 sekúnda var eftir af leiknum og má segja að okkar menn hafi á þeim tímapunkti verið …

Jón Axel stigahæstur er Davidson mættu ofjörlum sínum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Það má segja að lið Davidson háskólans hafi mætt ofjörlum sínum í „March madness“ í gær þegar þeir töpuðu gegn sterku liði Kentucky, 73-78. Það er þó ekki hægt að hengja þetta tap á okkar mann, Jón Axel Guðmundsson, en hann var sjóðandi heitur í seinni hálfleik og setti 6 þrista í röð og endaði lang stigahæstur með 21 stig. …

Úrslitakeppnin hefst í kvöld – Þorsteinn er klár

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindvíkingar hefja leik í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla í kvöld. Grindavík mætir Tindastóli og fara á erfiðan útivöll á Sauðárkróki en þangað þurfa þeir að sækja í það minnsta einn sigur ef þeir ætla sér áfram.Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður í beinni útsendingu á Tindastóll TV fyrir þá sem komast ekki í Skagafjörðinn í kvöld. Karfan.is tók fyrirliða …

Jón Axel og félagar í úrslitin í háskólaboltanum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Davidson háskólanum náðu sögulegum árangri um helgina þegar þeir tryggðu sér sæti í úrslitakeppni bandaríska háskólaboltans. Sætið tryggðu þeir með sigri á Rhode Island í úrslitaleik Atlantic-10 deildarinnar, en lokatölur leiksins urðu 58-57. Jón Axel var einn af þremur leikmönnum liðsins sem lék allar 40 mínúturnar í leiknum og skilaði 9 stigum, 7 …

Breskir tvíburar til liðs við Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindvíkingar hafa bætt tveimur leikmönnum í hópinn fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna á komandi sumri, en hinar bresku, Rio og Steffi Hardy, gengu frá samningi við liðið í vikunni. Þær systur eru báðar 21 árs, Rio er sóknarmaður og Steffi varnarmaður. Báðar hafa spilað þær með Blackburn Rovers á Englandi. Þær munu koma til Grindavíkur í maí en þær leika háskólafótbolta í South Alabama …