Myndir frá póstmóti

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Hérna eru myndir frá póstmóti Breiðabliks sem ég tók þar það má senda mér fleiri myndir til að birta á síðunni á bjarni@umfg.is

Kærar þakkir

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Það fór ekki eins og við vildum í gær í Laugardalshöllinni    og þurfum við að bíta í það súra epli að hafa tapað tveimum úrslitaleikjum í röð, eftir að hafa unnið fyrstu fjóra.  Ég var ansi bjartsýnn í hálfleik og hélt að við værum að reka af okkur slyðruorðið en því fór víðs fjarri og sama hörmungarspilamennskan tók sig …

Upphitunarmyndband

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Egill Birgisson hefur klippt saman myndband sem ætti að kveikja í mönnum fyrir leikinn í dag.  

Stóri dagurinn nálgast

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Mikil spenna er komin í körfuboltaáhugafólk en eins og allir vita verður leikið til úrslita í Powerade-bikarnum á laugardag.   Eflaust mæta KR-inga kokhraustir til leiks en fyrirliði þeirra, Fannar Ólafsson lofaði 2 stórum titlum á þessu tímabili og þar sem Powerade-bikarinn flokkast undir stóran titil þá er ljóst að Fannar er fyrirfram búinn að vinna þennan leik á móti …

Upphitun fyrir bikarleikinn

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Nú eru aðeins þrír dagar í bikarúrslitaleik Grindavíkur og KR í Laugardalshöllinni.   Glæsileg upphitun verður fyrir leikinn sem hefst á föstudagskvöldið með Pub quiz-spurningakeppni í Framsóknarhúsinu að Víkurbraut. Á laugardaginn ver þétt dagskrá fyrir úrslitaleikinn en Grindavík hefur leigt Þróttaraheimilið í Laugardalnum þar sem hitað verður upp. Um kvöldið verður svo ball með Geimförunum á Salthúsinu, sama hvernig leikurinn …

Leikir hjá 7.flokki

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

7.flokkur drengja keppir við Njarðvík um næstu helgi. Strákarnir keppa hér í Hópinu í Grindavík við Njarðvík næstkomandi sunnudag 20.febrúar.  Garðar verður með Grindavíkurtreyjur.  Munum eftir legghlífum!  Mæting kl.14.30. Leikirnir hefjast kl.14.45 og verður lokið kl.16.  

Dapurt

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Hvað skal segja eftir þennan leik í kvöld?     Verulega dapurt á báðum endum vallarins og það er nokkuð ljóst að ef við girðum okkur ekki almennilega í brók fyrir úrslitaleikinn á laugardag að þú mun þetta verða röndóttur dagur! Sóknarleikur okkar var hreinasta hörmung nánast allan leikinn og á meðan vörnin er ekki þeim mun sterkari þá getur útkoman …

Fréttir af yngri flokkum

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Þá er frábæri helgi lokið þar sem stelpurnar unnu tvo leiki og töpuðu tveim Það voru 14 stelpur sem lögðu af stað á föstudaginn þar sem við stoppuðum á Litlu-Kaffistofunni og fengum okkur súpu og pönnuköku J Þá var haldið í bústað í eigum ömmu og afa Gígju. Stúlkurnar komu sér fyrir um leið og við mætum á svæðið og …

Fjölnir á toppinn

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Það voru vélstjórarnir á Fjölni SU 57 sem voru hlutskarpastir í fyrstu viku Hópleiksins um helgina, en þeir fengu 11 rétta og höfðu rúmar 36 þúsund krónur upp úr krafsinu.    Þátttakan í leiknum er góð og eru 46 hópar skráðir til leiks. Enn er hægt að skrá hóp til leiks en leikurinn stendur í 12 vikur en 10 bestu …

Flottur sigur hjá stelpunum

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Stelpurnar sigruðu Fjölni 82-51 í Iceland Express deild kvenna í dag. Eins og lokarölur gefa til kynna spiluðu stelpurnar flotta vörn, að fá á sig 51 stig í efstu deild er hrikalega flott.   Stelpurnar byrjuðu strax ákveðnar en Fjölnisstúlkur komu til baka, eftir það börðust stelpurnar eins og ljón. Grindavíkurstelpur leiddu með 12-16 stigum í öðrum og þriðja leikhluta …