Jósef genginn til liðs við PSFC Chernomorets Burgas

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Jósef Kristinn Jósefsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við búlgarska liðið PSFC Chernomorets Burgas en hann var á reynslu hjá liðinu í síðasta mánuði. Chernomorets Burga kaupir Jósef af Grindavík en kaupverðið er trúnaðarmál. Keppni í búlgörsku deildinni hefst aftur á morgun eftir vetrarfrí en félagaskiptaglugginn þar í landi lokar á sunnudaginn. Jósef vildi koma á framfæri þakklæti …

Glæsilegur sigur hjá 2. flokki

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

2. flokkur Grindavíkur og Njarðvíkur mættust í Reykjaneshöll í stórmerkilegum leik í kvöld. Þetta var hreinn úrslitaleikur um hvort liðið spilaði í B-riðli í sumar. Grindvíkingar fóru á kostum og lögðu Njarðvík að velli með fjórum mörkum gegn engu og verða því í B-riðli í sumar en Njarðvík í C-riðli. Ástæðan fyrir þessum leik var sú að liðin tefldu fram …

Starfsauglýsing

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Aðalstjórn UMFG auglýsir eftir starfsmanni í 25% starf til að sjá um innheimtu æfingagjalda, halda utanum iðkendaskýrslur og annað sem til fellur.   Nánari upplýsingar gefur Bjarni í síma 8917553 Umsóknum skal skilað í tölvupósti á umfg@umfg.is fyrir 1. Mars 2011  

Jósef floginn til Búlgaríu

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Jósef Kristinn Jósefsson, leikmaður Grindvíkur, fór í morgun til Búlgaríu til þess að semja við liðið PSFC Chernomorets Burgas en hann var á reynslu hjá liðinu í síðasta mánuði.  Grindavík og búlgarska félagið eru langt komin með að semja um kaupverðið. Nánar verður greint frá málinu síðar hér á heimasíðunni.

Nick Bradford til Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Nick Bradford er aftur á leið til Grindavikurliðsins en hann lék hér við frábæran orðstýr síðari hluta 2008/2009 tímabilsins.  Allir vita hvað Nick getur og hvers lags karakter hann hefur að geyma og vonandi mun koma hans koma liðinu aftur á réttu brautina. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær Nick kemur en unnið er í þeim málum. Frekari fregna …

Naumt tap í Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavíkurstelpur tóku í kvöld á móti Njarðvíkurstelpum í Röstinni í Grindavík  dómarar leiksins voru þeir Björgvin Rúnarsson og Georg Andersen. Ljóst var að bæði lið myndu selja sig dýrt Grindavíkurstúlkur í mikilli fallbaráttu við Fjölnir en Njarðvíkurstúlkur í harðri baráttu við Snæfellsstúlkur um fimmta sætið. 1. leikhluti var þó rólegur, bæði lið hittu ílla, og spiluðu harða vörn, staðan eftir fyrsta leikhluta …

13 réttir

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

GG fiskibollurnar smelltu sér á toppinn í Hópleiknum með því að fá 13 rétta og fengu 624.800 kr glæsilegur árangur hjá þeim.   Þeir tróna á toppnum með 22 en Margeir Guðmundsson hefur komið gríðarlega á óvart og fylgir fast á eftir með 20. Leikurinn er rétt að byrja og 10 vikur eru eftir og ég minni á að 2 …

Stutt stopp hjá Sims….

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Kevin Sims hélt af landi brott í dag    en honum var sagt upp í gærkvöldi.  Hann stóð engan veginn undir væntingum og því var þetta óumflýjanleg ákvörðun, sérstaklega í ljósi mjög slæms gengis liðsins um þessar mundir. Það kemur í ljós í leiknum á föstudag á móti Hamri hvort nýr eða nýjir leikmenn verði komnir til liðs við liðið…. …

Grindavík 4 – ÍR 2

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík sigraði ÍR í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum í gær. Orri Freyr og Guðmundur Bjarnason komu Grindavík yfir í fyrri hálfleik en heimamenn jöfnuðu fyrir hálfleik og var því staðan 2-2 eftir 45 mínútur. Í seinni hálfleik bætti Orri við einu marki og svo skoraði Jamie McCunnie lokamark leiksins úr vítaspyrnu. Næsti leikur Grindavíkur í Lengjubikarnum er næstkomandi laugardag …

Nýr leikmaður: Yacine Si Salem

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Franski leikmaðurinn Yacine Si Salem hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík.  Salem, sem er fæddur í Alsír, er 23ja ára og spilar sem framliggjandi miðjumaður eða framherji. Hann ólst upp hjá Le Havre í Frakklandi en var í tvö ár, 2008-2010, hjá Thrasyvoulos Filis í Grikklandi í 1. og 2. deild en fékk samningnum rift vegna fjárhagsörðugleika félagsins. …